Tuesday, March 1, 2005

Ég fer á eftir með 2. tölublað Tröllafrétta í póst, svo það veðrur að öllum líkindum borið út á morgun. Hið íslenska tröllavinafélag er annars að koma sér upp heimasíðu og félögum fer ört fjölgandi. 12. mars nk. verður farin vettvangsferð á slóðir Jóru tröllkonu í Ölfusi og við sunnanvert Þingvallavatn. Þeir sem hafa áhuga á að koma með mega hafa samband: trollavinafelag@gmail.com og skrá sig í ferðina. Það þarf að skrá sig eigi síðar en 9. mars svo að við verðum örugglega með nógu stórt farartæki fyrir mannskapinn.

No comments:

Post a Comment