Tuesday, June 29, 2010

Drengurinn heitir...

Hinn nýfæddi sonur okkar Rósu fékk nafn á Þingvöllum á fimmtudaginn var, við blót Ásatrúarfélagsins. Hann heitir Bragi Bergþór Viðar Vésteinsson og er hinn vænsti.



Í dag birtast á Egginni Ræður tvær af flokksráðsfundi VG, eftir sjálfan mig. Lesið þær.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Þið sem óttist krabbamein af völdum farsíma, andið rólega. Geislavarnir ríkisins greina frá: Venjuleg farsímanotkun eykur ekki líkur á heilaæxlum.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Utanríkisráðuneytið greinir frá: Tveir friðargæsluliðar til Kabúl. Nú? Er Ísland ennþá að hjálpa til við hernám Bandaríkjanna?

Monday, June 21, 2010

Á öruggum villigötum

Það birtist grein eftir mig í dag, „Á öruggum villigötum“, bæði á Egginni og Smugunni. Lesið hana.