Thursday, August 30, 2012

Ég er genginn úr VG

Ég hef sagt skilið við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð og hætti um leið í stjórn VG í Reykjavík og öllum öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Ástæðan er megn óánægja með störf og stefnu flokksins í ríkisstjórn, ásamt því að ég tel fullreynt að gera þær breytingar sem nauðsynlegar væru til að ég gæti átt samleið með flokknum.

Stjórnarsáttmálinn vissi á illt frá upphafi, þar sem flokksforystan lét undan í öllum aðalatriðum og fékk lítið í staðinn, og það við aðstæður sem fáir aðrir en smáborgaralegir tækifærissinnar í vinstrigæru hefðu getað gert. Fyrir tækifærissinna eru völd ekki verkfæri til að ná pólitísku markmiði, heldur eru völdin markmiðið sjálft. Sleikjuskapur við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sæmir ekki vinstrisinnaðri ríkisstjórn fullvalda ríkis, en er eðlileg hegðun fyrir smáborgaralega sýndarvinstristjórn sem er hvort sem er tilbúin til að selja fullveldið fyrir baunadisk. Úrræðaleysi í skuldamálum heimilanna sýnir glöggt að fjármálaauðvaldið hefur hér tögl og hagldir. Umsóknin um aðild að Evrópusambandinu var líka löðrungur sem erfitt verður að gleyma.

Ég segi skilið við VG vegna þess að ég er sósíalisti og VG er því miður ekki sósíalískur flokkur, heldur kratískur. Íslenskir kratar hafa undanfarin ár haft fordæmalaust tækifæri til að sýna hvað í þeim býr – eða, réttara sagt, að í þeim býr hvorki vilji né geta til að ganga gegn auðvaldsskipulaginu.

Ísland sárvantar sósíalískan flokk. Hann mun aldrei fæðast upp úr vopnahlésályktunum eða skilyrðislausri samstöðu með krötum og tækifærissinnum. Hið nýja verkefni er því að safna liði og stofna þennan flokk.

3 comments:

  1. Til hamingju með það!

    Guðmundur Brynjólfsson

    ReplyDelete
  2. Ég gekk úr flokknum daginn er flokkurinn sveik sín stefnumál með því að hefja aðlögunarferli að ESB.
    Ekki hef ég séð eftir þeirri ákvörðun þar sem flokkurinn hefur eins og þú segir þverbrotið þau gildi sem hann stóð fyrir.

    Vonandi taka einhverjir sannir alþýðumenn sig saman og mynda raunverulegan flokk, flokk sem berst fyrir hagsmunum fólksins ekki stórfyrirtækja og fjárglæframanna.

    ReplyDelete
  3. Þórarinn HjartarsonSeptember 16, 2012 at 9:43 PM

    Ég sagði mig úr VG árið 2007 – líka með greinagerð. Þú segir að fyrir krata sé vald ekki verkfæri heldur markmiðið. Ég orðaði það svo 2007: „Andófsflokkur í kapítalísku samfélagi getur aðeins sótt afl sitt í stéttabaráttu, hagsmunasamtök meðal alþýðu og virkar alþýðuhreyfingar. Andófsflokkur sem gerir það ekki hefur ekkert nema talandann… Kratískur umbótaflokkur er dæmdur til valdaleysis og stöðugs undanhalds, frá einu varnarvígi til annars – nema með því að gangast inn á skilmála auðstéttarinnar og leita valda í stjórnkerfi hennar.“

    ReplyDelete