Það þarf eindreginn brotavilja til að skilja ekki hvers vegna ætti að boða til kosninga. Úr því Alþingi felldi vantraustið í gær, þá kæmi ekki á óvart að mótmælin færðust í aukana. Ef ríkisstjórnin velur það sjálf, að láta bola sér frá völdum með illu, frekar en að verða við kröfunni um kosningar strax, -- þá er það bæði óábyrgt val og getur orðið dýrkeypt. Að ríkisstjórnin óttist kosningar -- það er í sjálfu sér næg ástæða til að halda kosningar, er það ekki?
Skoðanakannanirnar eru líka athyglisverðar. Bæði að Píratar sýnast dala smá og að Samfylkingin virðist ekki njóta óánægjunnar með stjórnina. En fylgisskot VG er þó skrítnara.
Ráð fyrir fólk sem ætlar á friðsöm mótmæli: * Klæðið ykkur eftir veðri; * ef þið eruð með skilti, verið þá viss um að spjaldið sé vel fest á stöngina svo það fjúki ekki af; * bylgjupappi virkar illa í mótmælaspjald nema í blíðasta veðri; * hafið með ykkur nesti og vatnsbrúsa; * farið á klóið áður en þið farið af stað; * ef þið viljið berja í járn til að gera hávaða, verið þá með vinnuvettlinga svo þið fáið ekki blöðrur í lófana; * dómaraflauta tekur lítið pláss en gerir mikið gagn; * hafið með ykkur eyrnatappa, að minnsta kosti fyrir börnin ykkar.
Vísir greinir frá krútt-mómenti þegar vingjarnlegur lögreglumaður gaf barni órigamí-fugl. Eldey dóttir mín var einmitt svo heppin að fá líka svona fugl frá þessum sama manni, þegar hún kom með mér á miðvikudaginn var. Sú var ánægð.
Saturday, April 9, 2016
Thursday, April 7, 2016
Þorvaldur svarar Ögmundi
Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar, skrifaði grein sem birtist í Fréttablaðinu í fyrradag. Þar svaraði hann grein Ögmundar Jónassonar, frá síðasta föstudegi. Lesið greinina á heimasíðu Alþýðufylkingarinnar:
Hvað þykistu vera að reyna að segja, Ögmundur?
Wednesday, April 6, 2016
Díalektísk messa á sunnudag
Lífsskoðunarfélagið DíaMat - félag um díalektíska efnishyggju heldur opna díalektíska messu næstkomandi sunnudag: 10. apríl, klukkan 11:00. Hún verður haldin í Friðarhúsi, Njálsgötu 87.
Díalektísk messa fer fram líkt og málfundur: hefst með framsögu og svo taka við almennar umræður sem hafa þann tilgang að allir viðstaddir skilji viðfangsefnið aðeins betur.
Framsögumaður á sunnudaginn verður Þorvaldur Þorvaldsson og umfjöllunarefnið: Hugmyndaþróun og sambúð ólíkra lífsskoðana.
Heitt verður á könnunni og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgengi fyrir fatlaða er ekki auðvelt en þó mögulegt
DíaMat - félag um díalektíska efnishyggju er veraldlegt lífsskoðunarfélag sem stofnað var árið 2015. Það er í umsóknarferli til að verða opinberlega skráð hjá innanríkisráðuneytinu sem lífsskoðunarfélag.
Thursday, March 31, 2016
"Hæfi" er marklaust orð
Ef fjármál maka eru manni óviðkomandi vegna þess að maðurinn er með aðra kennitölu en makinn, þá er "hæfi" ógegnsær orðaleppur sem villir um fyrir fólki.
Svipað og fyrir hrun (og kannski ennþá?) þegar t.d. feðgar töldust ekki vera "tengdir aðilar".

Friday, March 11, 2016
Píratar eru borgaralegur flokkur
Það er í raun ekkert skrítið við það að Píratar sópi svona að sér fylginu eins og undanfarið. Það er eins og þeir hafi á sér áru sem margir túlka sem eitthvað annað en gamla dótið á Alþingi. Og þeir eru vissulega eitthvað annað, að sumu leyti, -- en ekki eins ólíkir því gamla eins og fólk heldur líklega.
Þeir hafa á sér áru róttækni, áru rökfestu og heiðarleika, jafnvel óttaleysis frammi fyrir gamla kerfinu. Ætli það lýsi ekki ágætlega útbreiddum hugmyndum um þá? -- Nú ætla ég ekki að efa heiðarleika þeirra og óttaleysi. Rökfestan ætla ég hins vegar að sé ofmetin og róttæknin frekar lítil.
Það er tiltölulega lítill vandi að vera rökfastur þegar maður er í stjórnarandstöðu og það þýðir ekki endilega að maður verði það líka í stjórn. Saga Vinstri-grænna sýnir það nokkuð vel. Það er kannski ekki að marka þegar um er að ræða annan flokk -- en afstaða Pírata til ESB afhjúpar einkennilega órökrétta stefnu: þeir segja að það sé ekki hlutverk stjórnmálamanna að hafa afstöðu til ESB, heldur fyrst og fremst að tryggja kosningar og að "hlutlausar" upplýsingar liggi fyrir. Hvílík firra. Til að byrja með, þá er það einmitt hlutverk stjórnmálamanna að boða stefnu og reyna að fá fólk til fylgis við hana. En ekki hvað? Í tilfelli ESB eru bara tvær stefnur: með og móti. Það liggja þegar fyrir meira en nægar upplýsingar til að velja þar á milli. Fyrir utan þetta, eru "hlutlausar" upplýsingar ekki til í stjórnmálum, heldur draga þær alltaf dám af þeim farvegum sem þær hafa runnið eftir. Og það er bara lýðskrum að tala um kosningar eins og þær séu heilagur gral, eins og það sé lýðræðislegt að kjósa um loðnar spurningar, eða þá að kjósa um að afnema lýðræðið. Kosningar geta nefnilega vel verið ólýðræðislegar.
Þá er það hin meinta róttækni. Um síðustu helgi héldu Píratar einhvers konar vinnufund um efnahagsmál. Án þess að ég ætli mér að gerast einhver ráðgjafi þeirra, þá hefði þeir átt að halda þannig fund áður en þeir stofnuðu flokkinn. Efnahagsmálin eru burðarbitinn í alvöru stefnuskrá. Flokkur sem er ekki með efnahagsstefnu er bara tækifærissinnaður. Fyrir utan stefnuskrá Alþýðufylkingarinnar eru ekki nema einn eða tveir flokkar á Íslandi sem ná því máli að vera með alvöru efnahagsstefnu -- það eru Samfylkingin og líklega Sjálfstæðisflokkurinn. Stefnuleysi Pírata í efnahagsmálum sést best á því að þeir rúma anarkista og sósíalista jafnt og krata og jafnvel frjálshyggjufífl. Þessir hópar eru ósamrýmanlegir, nema þeir komi sér saman um eitthvað sem er ekki neitt. Það verður skrítið bragð af grautnum sem þau kokka saman úr því.
Á Íslandi hefur stéttarvitund alþýðunnar hnignað áratugum saman, sem er að því leyti eðlilegt, að hér hefur alþýðan ekki átt nothæfan stéttabaráttuflokk síðan um miðja 20. öld. Það sem lifir af íslensku vinstrihreyfingunni er flest komið á eftirlaun, fyrir utan auðvitað Alþýðufylkinguna. Gagnrýni á kapítalismann er og hefur lengi verið jaðarskoðun á Íslandi. Hana hefur vantað hjá mest áberandi talsmönnum hinna svokölluðu vinstriflokka.
Á þessum tíma hefur áróður borgaralegra og smáborgaralegra hugmynda vaðið uppi og markað djúp, borgaraleg spor í stéttarvitund mjög stórs hluta þjóðarinnar. Sáð eitruðum fræjum. Haldið fast að fólki ranghugmyndum um kapítalisma og um sósíalisma. Sáð einstaklingshyggju, græðgi, smásálarlegri spillingu ... að þessi gildi séu ekki allsráðandi í þjóðfélaginu gæti virst skrítið, en er auðvitað vegna þess að þau eru flestu eðlilegu fólki óeðlileg.
Það hlaut að koma að því að fólk gæfist í massavís upp á annars vegar purrkunarlausum boðberum auðvaldsins, öflunum sem núna eru í ríkisstjórn, og hins vegar á gagnslausri, borgaralegri stjórnarandstöðu sem kallar sig "vinstri" en meinar ekkert með því og hefur ekki upp á neitt annað að bjóða en áframhald kapítalismans, -- og nægir þá að minna á síðasta kjörtímabil.
Það hlaut að koma að því. Og Píratar eru þá í þessari sérstöku stöðu: pólitísk jómfrú, óspillt af valdastólum; eiga skörulega talsmenn sem koma vel fyrir í fjölmiðlum -- og svo með þessa hipp og kúl áru, sem minnir á pönk eða einhvers konar uppreisn. En boðskapurinn, stefnan, kjarninn í stefnuskránni: efnahagsstefnan ... lætur á sér standa. Með öðrum orðum: Píratar bjóða ekki upp á neitt annað en áframhaldandi kapítalisma, alveg eins og hinir flokkarnir á Alþingi.
Þeir eiga örugglega eftir að fá marga menn kjörna á næsta ári. Og þeir munu örugglega taka til í einhverjum úreltum lögum og reglugerðum og margir munu fagna. Þeir munu örugglega koma mörgu góðu til leiðar. Eins og hinir flokkarnir hafa gert þegar þeir hafa verið í stjórn. En þeir munu ekki valda hér þeim nauðsynlegu vatnaskilum í efnahagsstjórn að brjóta auðvaldið á bak aftur, né einu sinni reyna það. Áran er bara ára. Hún er ímynd, meira í ætt við markaðssetningu heldur en pólitík. Hún virðist virka vel, en eftir nokkur ár er ég hræddur um að margir hafi orðið fyrir vonbrigðum. Og margir aðrir halda örugglega áfram að klappa fyrir þeim eins og fótboltaliði. Eins og er hjá hinum flokkunum.
Á meðan munum við í Alþýðufylkingunni halda áfram að sækja í okkur veðrið með stefnu okkar, sem ein íslenskra stefnuskráa sker sig úr borgaralegu flokkunum með skýrri sýn og efnahagsstefnu, sem vísar veginn út úr kapítalismanum og kreppunni og í átt til jöfnuðar og félagslegs réttlætis. Öfugt við alla hina flokkana.

Tuesday, March 8, 2016
Áttundi mars
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti er í dag. Af því tilefni er baráttufundur í Iðnó, sem meðal annars má lesa um hér, sem ég hvet fólk til að mæta á þótt ég komist ekki sjálfur.
Ingen klassekamp uden kvindekamp!
Ingen kvindekamp uden klassekamp!
Ingen kvindekamp uden klassekamp!
Thursday, March 3, 2016
Ekki mannvonska, aðallega heimska
Flestir rasistar eru ekki "vont fólk" heldur virðulegir, sómakærir og illa upplýstir.
Það er feilskot að saka Ásmund Friðriksson um mannvonsku. Hann er aðallega hálfviti sem óábyrgt fólk hefur komið til of mikilla metorða.
Það þarf að taka það til alvarlegrar skoðunar, hvort Ásmundur þurfi ekki að læra að halda kjafti.

Wednesday, March 2, 2016
DíaMat: umsókn farin af stað
DíaMat - félag um díalektíska efnishyggju var stofnað í fyrra. Ég er formaður þess. Í gær póstlagði ég formlega umsókn um að það fái skráningu sem lífsskoðunarfélag. Áhugasamir geta lesið greinarstúf um það hér og geta líka gefið sig fram í tölvupósti: vangaveltur@yahoo.com
SA, lífeyrissjóðir og hagsmunir almennings
SA segja: „Lífeyrissjóðirnir gæta hagsmuna almennings í landinu“ - nú skal ég ekki efa það, að fólk í SA og fólk sem er á launum hjá lífeyrissjóðum eða öðrum fjármálafyrirtækjum trúi þessu sjálft. En ég held að þessi fullyrðing hljómi hlægilega í eyrum margra, ef ekki flestra annarra.
(Til samanburðar lýsa SA sjálfum sér svona: „Samtök atvinnulífsins eru í forystu um samkeppnishæft rekstrarumhverfi sem stuðlar að arðbæru fjölbreyttu og ábyrgu atvinnulífi sem bætir lífskjör allra.“ - má ekki líka skilja þetta sem „gæta hagsmuna almennings í landinu“?)
Staðreynd: Beinir fulltrúar auðvaldsins eiga urmul fulltrúa í stjórnum lífeyrissjóða.
Spurning: Ætli þeir gæti ekki hagsmuna umbjóðenda sinna?

Staðreynd: Lífeyrissjóðirnir hafa tapað gríðarlegu fé í verkefnum sem „einhverjir“hafa grætt gríðarlega á, og á að kaupa ónýt verðbréf sem „einhverjir“ hafa þá sloppið undan.
Spurning: Er hægt að útskýra það allt með klaufaskap?

Fullyrðing: Uppsöfnunarsjóðir með ávöxtunarkröfu eru ekki bjarghringur heldur myllusteinn fyrir almenning í landinu. Ávöxtunarkrafan þýðir annars vegar brask, þ.e. umsvif sem annað hvort tapa peningum eða græða á okurvöxtum eða arðráni. Hins vegar þýðir hún kröfu um síaukinn hagvöxt, sem getur ekki gengið upp vegna þess að kapítalisminn er ekki eilífðarvél heldur háður eigin tortímingu í formi kreppu. Kreppa kemur nokkrum sinnum á hverri starfsævi og í hvert skipti tapast verulegur hluti uppsöfnunarsjóða.
Þegar maður leggur saman iðgjaldið og peningana sem við borgum í vexti af lífeyrissjóðslánunum - hvað ætli gegnumstreymiskerfi mundi þá kosta í samanburðinum? Það væri áhugavert að vita það.
Og talandi um áhugavert: lesið ályktun Alþýðufylkingarinnar um lífeyrismál. Hún er áhugaverð!
Tuesday, March 1, 2016
Túristablaðran: Hvar endar þetta eiginlega?
Isavia var að uppfæra spá um fjölgun ferðamanna, úr 22% aukningu í 37% aukningu - miðað við í fyrra. Til stendur að nota 20 milljarða í viðbyggingar við Leifsstöð á árinu. Hvar endar þetta eiginlega? Hvað getur þetta land tekið við mörgum?
Og: Ef það gefur á bátinn í efnahagskerfi landanna sem ferðamennirnir koma frá, er þá flúðasiglingaferðin til Íslands ekki eitt af því fyrsta sem fólk hættir við að fá sér?
Spádómur: Í næstu kreppu (sem er kannski ekki langt undan) mun ferðamönnum til Íslands fækka um helming miðað við árið á undan. Hvað verður þá um öll nýju, fínu hótelin sem nú eru í byggingu?
Fordæmið er ekki langt undan: Spánn er ekki ennþá búinn að rétta úr kútnum eftir að þýskir ellilífeyrisþegar hættu að kaupa sér annað heimili í sólinni fyrir 7-8 árum síðan. Það er ekki nóg að byggja bara meira og meira upp af gistirýmum og öðrum innviðum. Það þarf líka að segja stopp á einhverjum tímapunkti. Stjórnvöld þurfa að gera það. Annað væri óábyrgt.

Friday, February 19, 2016
Á morgun: Alþýðufylkingin kynnir sig
Alþýðufylkingin heldur opinn kynningar- og umræðufund á morgun (20. febrúar) kl. 13, í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Skoðið fréttatilkynninguna:
...og mætið svo þangað og takið gesti með ykkur.

Tuesday, February 9, 2016
TISA og lýðræði á undanhaldi
Þórarinn Hjartarson skrifar á heimasíðu Alþýðufylkingarinnar:
TISA og lýðræði á undanhaldi
Friday, February 5, 2016
Bréfaskipti Þorvalds og Katrínar um Rússland og Úkraínu
Þorvaldur Þorvaldsson skrifaði um daginn opið bréf til Katrínar Jakobsdóttur, og kallaði eftir því hvaða aftöðu Vinstri-græn hefðu til fasistavaldaránsins í Úkraínu og til viðskiptaþvingananna gegn Rússum. Lesið greinina. Katrín Jakobsdóttir brást svo við fáum dögum seinna, lesið líka: bréf til Þorvalds.
Athugið að ég skrifa „brást við“ en ekki „svaraði“ vegna þess að ég sé ekki að hún svari einföldum, beinum spurningum sem til hennar var beint. Vill einhver sjá skýra og beinskeytta afstöðu til málsins? Lesið þá ályktun Alþýðufylkingarinnar.

Tuesday, January 26, 2016
Hvaðan kemur allt þetta flóttafólk?
Flest flóttafólkið sem streymir nú til Evrópu er að flýja frá löndum sem eru í rúst eftir hernað heimsveldanna, ekki síst NATÓ (með þátttöku Íslands, ef einhver var búinn að gleyma því). Flóttamannastraumi fylgja vitanlega margvísleg vandamál -- en þeim vandamálum er tæpast hægt að líkja við vandamálin sem fólkið er að flýja. Flóttamenn koma, eðli málsins samkvæmt, ekki af því að þá langi bara til að koma, heldur eru þeir á flótta.
Ef fólk vill ekki flóttamannastraum -- og auðvitað vill hann enginn -- þá væri góð byrjun að hætta að taka þátt í að drepa fólk í öðrum löndum og rústa heimkynnum þess. Þið sem studduð Íraksstríðið og Afganistanstríðið eða loftárásirnar á Líbíu og Júgóslavíu -- munið það næst þegar á að fara í stríð og landsfeðurnir og spunarokkarnir fara að tala um hvað þessi eða hinn forsetinn sé mikill skúrkur.
Óvinurinn heitir: Heimsvaldastefnan. Hún er aflið sem sundrar friði og rekur fólk á flótta. Hún er skúrkurinn sem þarf að knésetja.

Thursday, January 21, 2016
Nýlendufranki
Fyrir 10 dögum bloggaði ég og spurði hvort franski frankinn lifði enn, en fréttamaður RÚV hafði þá skrifað eins og hann væri í notkun í Afríki, eða hefði verið það til skamms tíma.
Þetta var víst ekki alls kostar rangt hjá RÚV. Þótt það sé að vísu ekki franski frankinn, þá er CFA-frankinn mikið notaður í mörgum löndum Mið- og Vestur-Afríku. CFA stendur fyrir "Nýlendur Frakka í Afríku". Gjaldmiðillinn var með fast gengi við franska frankann og eftir að evran var tekin upp er hann með fast gengi við hana.
Gagnrýnendur segja gjaldmiðilinn gera þessi fátæku lönd háð Frökkum, sínum gömlu nýlenduherrum, og gera þeim erfitt fyrir í efnahagsmálum. Málsvarar nútíma nýlendustefnu sjá hins vegar mikla kosti við þetta fyrirkomulag.
Þess má geta að Líbýustjórn undir Muammar Gaddhafi sáluga var með plön um nýjan, sam-afrískan gjaldmiðil sem ætti að leysa CFA-franka af hólmi og minnka þannig ítök Frakka í efnahagsmálum álfunnar. Voru Líbýumenn meðal annars búnir að safna hátt í 200 tonna gullforða til að standa að baki sínum gjaldmiðli. Þessi hættulegu áform voru ein af aðalástæðunum fyrir því að NATÓ hleypti öllu í bál og brand í Líbýu árið 2011, með stuðningi norrænu velferðarstjórnarinnar íslensku.
Þetta var víst ekki alls kostar rangt hjá RÚV. Þótt það sé að vísu ekki franski frankinn, þá er CFA-frankinn mikið notaður í mörgum löndum Mið- og Vestur-Afríku. CFA stendur fyrir "Nýlendur Frakka í Afríku". Gjaldmiðillinn var með fast gengi við franska frankann og eftir að evran var tekin upp er hann með fast gengi við hana.
![]() |
| Þúsund CFA-frankar. Mynd: Wikipedia |
Þess má geta að Líbýustjórn undir Muammar Gaddhafi sáluga var með plön um nýjan, sam-afrískan gjaldmiðil sem ætti að leysa CFA-franka af hólmi og minnka þannig ítök Frakka í efnahagsmálum álfunnar. Voru Líbýumenn meðal annars búnir að safna hátt í 200 tonna gullforða til að standa að baki sínum gjaldmiðli. Þessi hættulegu áform voru ein af aðalástæðunum fyrir því að NATÓ hleypti öllu í bál og brand í Líbýu árið 2011, með stuðningi norrænu velferðarstjórnarinnar íslensku.
Monday, January 18, 2016
Brask með eignir almennings
Norski olíusjóðurinn er útópía sem m.a. borgaralegir vinstrimenn trúa á. Trúa á, að það sé hægt að þjóna langtímahagsmunum alþýðunnar með sjóðssöfnun og fjármálabraski, þótt allur hugsanlegur gróði af slíku komi alltaf á endanum úr vösum alþýðunnar sjálfrar. Þetta er sama hugsunarvillan og trúin á íslensku lífeyrissjóðina byggist á. Trúin á kapítalismann.
Í kapítalisma koma kreppur nokkrum sinnum á hverri meðalstarfsævi. Það er staðreynd. Mundi einhverjum detta í hug að safna matarforða til elliáranna og geyma hann svo í geymslu sem væri vitað að ætti eftir að brenna a.m.k. tvisvar eða þrisvar áður en ætti að éta hann?
Það getur ekkert vaxið endalaust. Það er staðreynd. Hagkerfið getur heldur ekki vaxið endalaust. Þegar af þeirri ástæðu er gróðahlutfallið dæmt til að minnka strax og menn fara að nálgast endimörk vaxtarins. Burtséð frá því krefjast þróaðri atvinnuhættir sífellt meiri fjárfestingar, sem aftur ber fjármagnskostnað, þannig að á þeim enda lækkar gróðahlutfallið líka.
Í tilfelli íslensku lífeyrissjóðanna, þá ávaxta þeir sig að miklu leyti með húsnæðislánum til sjóðsfélaga, á markaðskjörum. Meira en helmingurinn af húsnæðiskostnaði er vextir. Mundi einhver með öllum mjalla borga 100 milljónir fyrir hús sem kostar 40 milljónir? Það hljómar kannski klikkað, en margir gera það samt.
Saturday, January 16, 2016
Síðasta nýlenda Afríku
Vestur-Sahara er stundum kallað síðasta nýlendan í Afríku. Ekki höfðu spænsku nýlenduherrarnir fyrr yfirgefið svæðið, en marokkóski herinn kom og lagði það undir sig og innlimaði í Marokkó. Þeir hafa síðan farið með rányrkju um auðlindirnar - einkum auðugar fosfatnámur (fosföt eru einkum notuð í kemískan áburð fyrir landbúnað) og fiskimið, þar sem m.a. íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa fagnandi tekið þátt í að ryksuga upp þjófstolinn hestamakríl.
Til að styrkja hernám sitt í sessi hafa marokkóskir landnemar svo verið fengnir til að setjast að í Vestur-Sahara.
Þess má geta að Vestur-Saharamenn (Sahrawi-þjóðin) eru innan við milljón talsins og Marokkómenn 33 milljónir.

Tuesday, January 12, 2016
Albaníu-Ásdís og ungbarnadauðinn í Albaníu
Undanfarið hefur verið nokkur umræða um heilbrigðiskerfið í Albaníu -- væntanlega í sambandi við langveiku börnin -- og þá hafa menn rifjað upp ummæli Albaníu-Ásdísar Höllu Bragadóttur um að heilbrigðiskerfi Albaníu væri "ljósárum á undan" Íslandi í samkeppni í heilbrigðisþjónustu. Egill Helgason benti á að á meðan ungbarnadauði á Íslandi væri 2 af 1000, væri hann 13 af þúsund í Albaníu, -- skuggaleg tala fyrir Evrópuland. Ásdís varðist þessu tali og sagði að ungbarnadauðinn hefði verið þrisvar sinnum hærri 1989.
Það er rétt að halda því til haga hér, að valdatöku kommúnista í Albaníu 1945 fylgdi sannkölluð bylting í heilbrigðismálum -- eins og fylgir reyndar oft valdatöku kommúnista. Á fyrstu átta árum valdatíma þeirra meira þrefaldaðist t.d. fjöldi spítalarúma, úr 1765 í 5500 (sem var samt of lítið) og ungbarnadauðinn lækkaði úr 112,2 af 1000 árið 1945 niður í 99,5 af 1000 árið 1953. Á þessum 8 árum lærði meira en hálf þjóðin að lesa (ólæsi fór úr 85% niður fyrir 30%) og mýrar voru ræstar fram og malaríu þannig útrýmt. Það munar víst um það líka. Og árið 1970 var ungbarnadauðinn kominn niður í 75 af 1000 og niður í 40 af 1000 árið 1989.
Á árunum 1945 til 1990 fjölgaði fólki úr rúmri 1,1 milljón í 3,3 milljónir, vegna þess að fólk lifði miklu lengur. Frá 1990 hefur því fækkað aftur niður í rétt rúmar 3 milljónir.
Þessar tölur tala sínu máli, er það ekki?

Monday, January 11, 2016
Lifir franski frankinn enn?
Af vef RÚV:
Auk þess höfðu [Frakkar] miklar áhyggjur af því að Gaddafi ætlaði að minnka áhrif Frakka með því að koma á fót eigin gjaldmiðli, sem yrði notaður víðar í álfunni, til þess að koma í stað franska frankans sem er útbreiddur í Afríku. Gaddafi lá á gríðarlegum gull- og silfurforða sem hann ætlaði að nota til þess að styðja við gjaldmiðilinn.Frakkar tóku þátt í Líbýustríði til að standa vörð um franska frankann. Þetta hefur RÚv eftir Simon Blumenthal, ráðgjafa Hillary Clinton. Franska frankann? Hafa Afríkumenn ekki frétt af evrunni?
Tuesday, December 29, 2015
RIP Lemmy Kilmister
Síðan ég var unglingur hefur Lemmy Kilmister borið höfuð og herðar yfir aðra rokkara og fáir komist nálægt honum. Sem fullorðinn maður sá ég hann níu sinnum á tónleikum, einu sinni í Bretlandi og átta sinnum í Þýskalandi. Það voru góðar stundir.
Hann var kannski fylliraftur, hann var kannski dópisti, hann var kannski flagari, hann var kannski hás gamall karl með loðin kýli út úr andlitinu, en hann var alltaf langflottastur og alltaf einstakur.

Tuesday, December 15, 2015
DíaMat: Díalektísk efnishyggja
DíaMat - félag um díalektíska efnishyggju tók til starfa fyrr á þessu ári, og hefur smám saman verið að safna félögum. Vantrú birti á dögunum grein um það, eftir sjálfan mig, en ég er forstöðumaður þess.
Hér með er skorað á áhugasama að gefa sig fram í tölvupósti: vangaveltur@yahoo.com

Thursday, December 10, 2015
Um skertan samningsrétt stéttarfélaga
Þórarinn Hjartarson skrifar um þreifingar um rammasamkomulagið um vinnumarkaðinn, sem var undirritað í haust:
Skjótt og hávaðalaust er komin í notkun NÝ UMGJÖRÐ um kjaraviðræður í landinu. Rammi sem engar kröfur mega fara út fyrir liggur fyrir í upphafi viðræðna. Aldeilis tromp fyrir atvinnurekandann að slá í borðið með!
Er þetta nokkuð annað en tæki fyrir auðvaldið, til að skammta vinnandi fólki laun? Lesið grein Þórarins: Skertur samningsréttur stéttarfélaga.
Tuesday, December 8, 2015
Hið þríeina stríð gegn borgaralegum mannréttindum og frelsi
Landsfundur Alþýðufylkingarinnar, sem haldinn var á dögunum, ályktaði um hið þríeina stríð gegn borgaralegum mannréttindum og frelsi. Í ályktuninni segir meðal annars:
Stríðið gegn fíkniefnum drepur milljónir sjúklinga á hverju ári, stimplar neytendur sem glæpamenn og leyfir glæpaklíkum að einoka markaðinn, oft með skelfilegum afleiðingum fyrir saklausa borgara. Það er í nafni þessa stríðs sem íslensk ungmenni eru gerð ærulaus, finnist þau með korn af kannabis í fórum sínum.
Enn fremur segir:
Stríðið gegn hryðjuverkum drepur hundruð þúsunda saklausra borgara árlega, heldur þjóðum í herkví og takmarkar gróflega frelsi flugfarþega, sem eru meðhöndlaðir sem glæpamenn við vopnaleit. Það var í nafni þessa stríðs sem ráðamenn Íslands gerðust stríðsglæpamenn í Írak.
Þá segir:
Stríðið gegn internetinu veldur því að fólk eins og Chelsea Manning situr í fangelsi, Edward Snowden er landflótta og Julian Assange má sig hvergi hræra af ótta við að verða framseldur til Bandaríkjanna - fyrir það eitt að leka upplýsingum. Í nafni öryggis, bannhyggju og forvarna er aðgangi almennings að upplýsingum eða að koma frá sér upplýsingum lokað eða reynt að loka víðsvegar í heiminum. Það er í nafni þessa stríðs þegar íslenskir ráðamenn ætla að loka fyrir aðgang almennings að hluta internetsins.
Lesið ályktunina í heild sinni á heimasíðu Alþýðufylkingarinnar:
Hið þríeina stríð gegn borgaralegum mannréttindum og frelsiechelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon
Monday, December 7, 2015
Húsnæðiskreppan: ályktun landsfundar Alþýðufylkingarinnar
Landsfundur ALþýðufylkingarinnar, sem haldinn var um seinustu helgi, ályktaði um húsnæðismál:
Stefna íslensku auðstéttarinnar er að nota húsnæðisþörf fólksins sem féþúfu sem gefur af sér hámarksgróða. Í meira en 30 ár hefur almenningur borgað margfalt fyrir íbúðir sínar með okurvöxtum.Ríkisstjórnin sem sat kjörtímabilið 2009-2013 sá þá lausn helsta á skuldavanda almennings að reka þá fátækustu út á götuna og neyða þá til að borga himinháa húsaleigu m.a. með því að hindra aðgang að lánsfé nema til braskara.
Hvað er þá til ráða? Ályktunin svarar því:
Eina leiðin út úr húsnæðiskreppunni er sú sem Alþýðufylkingin hefur boðað, með félagsvæðingu fjármálakerfisins. Skref í þá átt gæti verið að allir geti fengið vaxtalaust lán að vissri upphæð af samfélagslegu eigin fé til húsnæðiskaupa.Að sama skapi þarf að vera nægt framboð á félagslegu húsnæði án fjármagnskostnaðar til að uppfylla þörf fyrir leiguhúsnæði.
Lesið ályktunina í heild: Húsnæðiskreppan.
Sunday, December 6, 2015
Af landsfundi Alþýðufylkingarinnar
Alþýðufylkingin hélt vel heppnaðan landsfund um helgina. Sjá hér um stjórnarkjör.
Þar var m.a. samþykkt gagnmerk ályktun um heilbrigði- og velferðarmál, sem lýsir m.a. „beiskri gremju yfir þeirri hörðu sveltistefnu sem íslenska heilbrigðiskerfið hefur verið rekið eftir um langt árabil og miðar að vaxandi einkavæðingu.”
Um nýjan Landspítala við Hringbraut segir:
Landsfundurinn ályktaði líka um kreppu auðvaldsskipulagsins, heimsvaldasinnaðan stríðsrekstur og nauðsyn byltingar:
Svo var samþykkt ályktun um brýnt mál: samningsrétt verkalýðsfélaganna. Tilefnið er samkomulag SALEK-hópsins, sem ber sterkan þef af stéttasamvinnustefnu. Þar stendur meðal annars:

Áformin um að byggja fokdýrt, nýtt háskólasjúkrahús á óhentugum stað - áform sem líta út fyrir að vera óstöðvandi - virðast klikkuð, en skiljast þegar fjármögnunin er tekin með í reikninginn: að brasksjóðir atvinnurekenda- og verkalýðsaðalsins fái tækifæri til að fjárfesta í byggingum og leigja þær svo ríkinu með öruggum tekjum áratugi fram í tímann - það er hvöt sem við berum kennsl á. Þar ræður ágirnd og gróðafíkn fjármagnsins för, en ekki hagsmunir sjúklinga eða almennings.
Þá segir, um leiðina út úr ógöngum íslenska heilbrigðiskerfisins:
Lykillinn að því að endurreisa þessa máttarviði þjóðfélagsins er félagsvæðing heilbrigðis- og velferðarkerfisins, sem og félagsvæðing fjármálakerfisins. Sú síðastnefnda losar um fjármagn, sem núna rennur úr opinberum sjóðum í óseðjandi hít gróðadrifins fjármálakerfis, og væri betur komið í þágu heilsu og velferðar.
Landsfundurinn ályktaði líka um kreppu auðvaldsskipulagsins, heimsvaldasinnaðan stríðsrekstur og nauðsyn byltingar:
Almenn kreppa auðvaldins hefur nú farið dýpkandi um árabil og möguleikar þess til vaxtar og þróunar eru tæmdir. Að sama skapi verður afætueðli auðvaldsskipulagsins alls ráðandi og átök fara harðnandi milli stórvelda og bandalaga þeirra um auðlindir og áhrifasvæði. Í þeim átökum er mannslífum fórnað í stórum stíl og velferð fólksins um allan heim höfð að skiptimynt.
Þar segir líka:
Þrátt fyrir aukna þekkingu á umhverfi og náttúru eykst umhverfisvá á flestum sviðum, þannig að sífellt stærri svæði jarðarinnar verða óbyggileg, hlýnun af manna völdum er að fara úr böndunum og vistkerfum hrakar.
Að óbreyttu heldur áfram glundroði og upplausn samfélaga. Styrjaldir heimsvaldasinna magnast og leysa upp samfélagsinnviði heilla heimshluta.
Hvað er þá til ráða?
Til að hindra að [þessi þróun] haldi áfram er hins vegar nauðsynlegt að fólkið taki til sinna ráða og sameinist um stefnu sem miðar að því að svipta auðstéttina sínum efnahagslegu og pólítísku yfirráðum í samfélaginu og endurreisa það á félagslegum forsendum. Pólitísk og félagsleg skipulagning með þetta markmið er lífnauðsyn fyrir íslenskt samfélag eins og alls staðar annars staðar. Framtíð mannkyns og siðmenningar er í húfi.
Svo var samþykkt ályktun um brýnt mál: samningsrétt verkalýðsfélaganna. Tilefnið er samkomulag SALEK-hópsins, sem ber sterkan þef af stéttasamvinnustefnu. Þar stendur meðal annars:
Reynslan sýnir hins vegar að stéttasamvinnustefnan hefur aldrei skilað neinum árangri til bættra kjara fyrir verkafólk. Það hefur aldrei náð neinu fram án baráttu. Við óbreytt ástand eru lágmarkskjör alþýðunnar hins vegar stillt við hungurmörk til að tryggja auðstéttinni hámarksgróða.
Líka:
Sú breyting sem helst þarf að gera á vinnumarkaðsmódelinu er að losna við sjálftöku fjármálaauðvaldsins út úr raunhagkerfinu og styðja baráttu vinnandi fólks fyrir réttlátum hlut.
Thursday, November 5, 2015
Maxismi á vorum dögum: málþing á laugardag
Rauður vettvangur efnir til málþings um marxisma á vorum dögumlaugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Friðarhúsi, Njálsgötu 87 (horni Snorrabrautar). Rætt verður um erindi marxismans við nútímann og nokkur helstu álitamál í þeim efnum. Framsögumenn: Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Attac, Vésteinn Valgarðsson, formaður Rauðs vettvangs, Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar. Umræður verða að loknu hverju framsöguerindi og einnig í lokin.
Allir eru velkomnir!
Friday, September 11, 2015
Samstaða með flóttamönnum, Austurvelli kl. 13 laugardag
Flóttamannaverkefnið vegna stríðsins í Sýrlandi og fleiri átaka er ærið.
Á morgun, laugardaginn 12. september er alþjóðlegur samstöðudagur með flóttafólkinu. Kl. 13 verður samkoma á Austurvelli af þessu tilefni.
Fésbókarsíðu viðburðarins má sjá hér.
Monday, June 8, 2015
Monday, April 6, 2015
Kvikmyndin "Nói"
Ég sat frameftir í gærkvöldi og horfði á stórslysa-hryllingsmyndina "Nóa". Hún er gerð eftir þjóðsögu um sálsjúkan, megalómanískan harðstjóra sem ákveður að eyða mannkyninu. Ég hef heyrt að hún hafi fengið frekar lélega dóma -- og hef svo sem ekki miklu við það að bæta. Nema því að uppáhalds hlutanum mínum var sleppt, þegar Nói kemur út úr örkinni. Í fyrstu Mósebók, 8:20, stendur:
Þá reisti Nói Drottni altari, tók af öllum hreinum dýrum og af öllum hreinum fuglum og færði brennifórn á altarinu.(Heimild: Biblian.is)
Wednesday, March 18, 2015
Alþýðufylkingin styður viðræðuslit, gagnrýnir málsmeðferð
Ég vek athygli á því að Alþýðufylkingin var að senda frá sér:
Ályktun um viðræðuslit við ESB
Tuesday, March 17, 2015
Landsfundur SHA: hvert á friðarhreyfingin að stefna?
Landsfundi Samtaka hernaðarandstæðinga, sem átti að fara fram sl. laugardag, var frestað vegna veðurs og verður í staðinn haldinn annað kvöld, miðvikukvöld, eins og fram kemur á Friðarvefnum.
Ég býð mig fram til formanns. Af því tilefni vil ég vekja athygli á grein eftir sjálfan mig, sem birtist í síðasta tölublaði Dagfara, málgagns SHA, og einnig á þessu bloggi hér: Hvert eiga SHA að stefna?

Monday, March 16, 2015
ESB, rétt ákvörðun, röng málsmeðferð
Eins og fastir lesendur mínir vita, er ég fortakslaus andstæðingur ESB-aðildar Íslands. Því styð ég að umsóknin sé tekin til baka og helsta gagnrýni mín við afturköllunina er að hún hefði mátt verða fyrr.
Að því sögðu, er naumast hægt að láta málsmeðferðina óátalda. Ríkisstjórnin segir að stjórnarandstaðan hafi drepið málið með málþófi síðast þegar það var tekið upp í þinginu. Því hafi þurft að fara þessa leið. Laggó - en það var samt ekki það sem þeir lögðu upp með í kosningabaráttunni. Þeir sögðust báðir, Framsókn og Sjálfstæðis, mundu leggja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ef það hefur eitthvert gildi að segja tæpum tveim árum seinna hvað aðrir hefðu átt að segja þá, þá hefðu þeir átt að segjast mundu bara slíta viðræðunum. Það er heiðarlegt að segjast ætla að gera það, og ef maður er kosinn út á slíka yfirlýsingu hefur maður líka umboð til að gera nákvæmlega það.
Þá eru reyndar ótalin brögðin sem síðasta ríkisstjórn beitti til að koma málinu áfram. Eins og að selja aðildarviðræður sem eitthvert "kíkja í pakkann"-dæmi og fara svo fram með stórfellt aðlögunarferli. Eða að semja um að leggja fram ráðherrafrumvarp en legga síðan fram ríkisstjórnarfrumvarp.
Hvað um það. Ég styð að umsóknin sé dregin til baka, og þótt fyrr hefði verið, en það er vont bragð af málsmeðferðinni.

Thursday, March 12, 2015
Hvert eiga SHA að stefna?
Þessi grein birtist í Dagfara, málgagni Samtaka hernaðarandstæðinga, sem kom út í vikunni.
-- -- -- -- -- -- --
Veður eru válynd í heiminum og spjót heimsvaldasinna standa á öllum sem reyna að fara eigin leiðir: Sýrlendingar vaða elginn gegn IS-skrímslinu sem Vesturveldin hafa magnað upp gegn þeim; Úkraínumenn eru komnir undir hæl fasískra valdaræningja á bandi Vesturveldanna; Líbýa logar stafna á milli eftir árásarstríð og friður er hvorki í augsýn í Írak eða Afganistan, svo fátt eitt sé nefnt.
Í aðdraganda síðara Íraksstríðs, veturinn 2002-2003, hélt Átak gegn stríði vikulega útifundi gegn áformum Amríkana og hjáleigubænda þeirra nær og fjær. Laugardagsmótmælin stóðu mánuðum saman við Stjórnarráðið og stundum líka við amríska og jafnvel breska sendiráðið. Okkur tókst ekki að hindra að morðingjarnir í jakkafötunum tækju þátt í svívirðilegum glæpum í nafni Íslands − en þeir gerðu það að minnsta kosti ekki óátalið. Ef það skiptir einhverju máli.
Þó það sé dapurlegt að þurfa að mótmæla stríði, þá er samt uppörvandi að upplifa samstöðuna í baráttunni, að sjá hundruð manns koma aftur og aftur á útifundi til að sýna að stríðið sé ekki okkar stríð, ekki háð með okkar samþykki og að ríkisstjórnin tali ekki fyrir okkur. Ég var einn margra sem gengu í Samtök herstöðvaandstæðinga þennan vetur.
Ég sakna þessarar samstöðu, þessarar lifandi hreyfingar, baráttunnar. Eins og hún fyllti okkur eldmóði, fyllti hún margan stríðsæsingamanninn skelfingu og hélt fyrir þeim vöku. Í nágrannalöndum okkar voru aftur og aftur haldnir mörg hundruð þúsund eða milljóna manna fundir. Hvert fór allur þessi gríðarlegi kraftur? Hvað varð um hreyfinguna? Hvert fór baráttan? Höfum við látið slæva okkur með betur hugsuðum áróðri? Trúum við í alvöru á „íhlutun í mannúðarskyni“? Trúum við að lýðræðið skjótist út úr byssuhlaupi heimsvaldastefnunnar?
Þegar Líbýustríðið var að byrja héldu nágrannar okkar í bresku friðarhreyfingunni mótmæli gegn Líbýustjórn. Ég held að þá hafi botninum verið náð í niðurlægingu hreyfingarinnar frá 2002/3. Eða ég vona alla vega að það hafi verið botninn.
Á meðan heimsvaldastefnan heldur áfram að níðast á saklausu fólki um allan heim, þá verður þörf fyrir friðarhreyfinguna. Ekki til að tilkynna kurteislega að okkur hugnist ekki stríð. Ekki til að fræðast um löndin sem er verið að ráðast á eða til að drekka öl. Heldur til þess að reyna − reyna í alvöru − að hindra að stríð brjótist út og stöðva þau ef það gerist samt. Í íslensku samhengi þýðir þetta að hindra að Ísland styðji heimsvaldastríð, og að leggja alla þá steina sem hægt er í götu þess. Það er baráttan og aðeins baráttan sem réttlætir hreyfinguna.
Það er þörf fyrir hreyfingu sem er virk og lifandi, sem er vaxandi að styrk og áhrifum, hreyfingu sem tekur hlutverk sitt alvarlega. Samtök hernaðarandstæðinga eru meira en geymsla fyrir arfleifð úr baráttu fyrri tíma. Við erum burðarásinn í íslensku friðarhreyfingarinnar. Við eigum að vera baráttusamtök sem íslenskir hermangarar taka alvarlega. Refsivöndur sem þeir óttast.
Það styttist í landsfund SHA. Hann er vettvangurinn til að marka samtökunum stefnu fyrir komandi starfsár. Gerum það.
-- -- -- -- -- -- --
Landsfundur SHA er á laugardag, 14. mars. Ég gef kost á mér til formennsku.
Friday, March 6, 2015
Aðild að þrotabúi
Evrópusambandið er bandalag evrópsks einokunarauðvalds og auðhringa um hagsmuni sína. Þar ræður fjármagnið för, gjarnan í samfloti við iðjuhölda og stórfyrirtæki.
Ein stór blekking ESB-sinna er að sambandið ráði í raun litlu um innri málefni aðildarríkjanna. Önnur stór blekking ESB-sinna er að gera lítið úr lýðræðishalla Evrópusambandins. Það gefur tóninn í öllum meginmálum, nema kannski trúmálum ef einhver telur þau ennþá til meginmála. Þegar það stjórnar ekki með beinum tilskipunum stjórnar það með því að láta ríkin „sjálf“ ákveða hlutina. Líkt og þegar ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms tók „sjálf“ ákvarðanir um að fara eftir öllum „ráðleggingum“ Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Eða líkt og þegar skuldari ákveður „sjálfur“ að fara eftir „ráðleggingum“ handrukkarans sem „forðar honum“ þannig frá verri hlutum.
Þriðja blekkingin er að setja samasemmerki milli Evrópusambandsins og Evrópu. Evrópa er landfræðilegt hugtak og ekkert getur breytt því að Ísland er Evrópuríki. Og Noregur líka, og Rússland og Hvítarússland og Albanía og Serbía og Sviss.
Áhyggjur af örlögum útgerðarinnar ef við gengjum í ESB eru gild ástæða til efasemda eða andstöðu. Þær eru samt ekki mín höfuðástæða. Sem pólitískt og efnahagslegt bandalag heimsvaldaauðvaldsins, er Evrópusambandið bakhjarl fyrir auðvald sérhvers aðildarríkis. Þar er auðvaldsskipulagið beinlínis bundið í stjórnarskrá. Það er ekki hægt að byggja upp félagslegt fjármálakerfi eða efnahagskerfi og ekki einu sinni félagslegt velferðarkerfi í landi sem er innan Evrópusambandsins. Auðvaldsskipulagið er reyndar líka bundið í stjórnarskrá Íslands - en henni getum við sjálf breytt, án þess að þurfa fyrst að breyta stjórnskipan heillar heimsálfu með einróma samþykki.
Fjórða blekkingin er að Evrópusambandið sé einhver málstaður vinstrimanna, eitthvert bákn félagslegs réttlætis og regluverks til að hafa hemil á auðvaldinu. Það spillir að vísu fyrir þjóðlegu borgarastéttinni, eins og íslenskum útgerðarmönnum, en styrkir þá alþjóðlegu því meir í sessi. Með tímanum rýrnar því og hverfur þjóðleg borgarastétt í aðildarlöndunum. Hagsmunir þeirra fyrirtækja sem eftir lifa samtvinnast aðildinni. Efnahagslífið grær fast. Þannig að eins og ljósmóðirin var vön að segja þegar konunum gekk illa að fæða, þá er auðveldara í að komast en úr að fara.
Mínir fyrrverandi félagar í VG kalla það alltaf svo að „hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins“. Það er mjög varfærnislega orðað. Óeðlilega varfærnislega. Hagsmunum Íslands - alla vega alþýðu Íslands - er beinlínis ógnað af ESB-aðild. Ef við vildum koma hér á félagslega reknu fjármálakerfi eða öðrum sósíalískum ráðstöfunum, væri ESB-aðild ekki girðing heldur borgarmúr í veginum. EES-aðildin getur verið það líka, en það er þó auðveldara að losna úr henni ef því er að skipta.
Ég skil hins vegar vel að stjórnendur í ýmsum atvinnugreinum, eins og verslun, sumum iðnaði og fjármálabraski (ef brask telst atvinnugrein) sjái hagsmuni í aðild.
Núverandi krísa evrunnar, atvinnuleysið og skuldafjallgarðarnir breyta í sjálfu sér engu um ófýsileika inngöngu. Hún var ófýsileg og er ófýsileg. Bara ennþá meira núna en áður fyrr. Að minnsta kosti fyrir flestallt venjulegt fólk. Það er eitt skýrasta dæmið um tækifærismennsku og reiðarek margra evrópskra vinstriflokka, að átta sig ekki á þessu.
Til allrar hamingju fyrir Ísland, er hér til einn vinstrisinnaður stjórnmálaflokkur sem hefur einarða og samkvæma stefnu um afdráttarlausa og trúverðuga andstöðu gegn ESB. Það er Alþýðufylkingin.

Thursday, March 5, 2015
Léleg markaðssetning
Ég er með hálfs metra sítt hár á höfðinu og kollvikin eru á sama stað og þau voru fyrir 10 og 20 árum síðan. Þegar ég opna fréttasíðu Yahoo er þriðja hver "frétt" auglýsing um magnaðar nýjar leiðir til að vinna bug á skalla. Ef þetta á að heita "smart" markaðssetning eða sniðin að einstökum neytendum, þá er mikið verk eftir óunnið á sviði gervigreindar.
Monday, March 2, 2015
Málaflokkur fatlaðra, ríki, sveitarfélög, stéttarfélög
Ég sé á fréttasíðu Ríkisútvarpsins að félagsmálaráðherra „segir það ekki koma til greina að ríkið taki aftur við málefnum fatlaðs fólks. Enginn niðurskurður hafi verið til sveitarfélaganna vegna málaflokksins.“ - En viti menn: „Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir þrjá milljarða vanta upp á.“
Þetta þarf því miður ekki að koma á óvart. Málaflokkurinn var færður frá ríki til sveitarfélaga 1. janúar 2011 og hafði þá yfirfærslunni verið frestað að minnsta kosti einu sinni vegna þess að undirbúningi var ábótavant. Ríkisendurskoðun hafði varað við því að tekjustofnarnir sem færðust með málaflokknum til sveitarfélaganna væru ekki nógu gildir, enda hafði málaflokkur fatlaðra verið fjársveltur um langt skeið árin á undan. Ekki nóg með það að sveitarfélögin keyptu þarna köttinn í sekknum, ef það má orða það þannig, heldur endurtóku þau sömu mistök og þegar þau yfirtóku grunnskólana frá ríkinu nokkrum árum áður. Þá fylgdu líka skertir tekjustofnar með og sveitarfélögin því í senn ábyrg fyrir málinu og þröngur stakkur skorinn.
Arkitektar þessarar mislukkuðu yfirfærslu voru Guðbjartur Hannesson, þá félags- og tryggingamálaráðherra og Halldór Halldórsson, þá bæjarstjóri á Ísafirði og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Það var fleira bogið við þetta heldur en tekjustofnarnir. Það var líka tekist á um stéttarfélagsaðild stuðningsfulltrúa við málaflokk fatlaðra. Ég var á þeim tíma formaður Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa (sem er fagfélag innan SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu). Við söfnuðum undirskriftum téðra stuðningsfulltrúa, þar sem þess var krafist að þeir fengju sjálfir að ráða stéttarfélagsaðild sinni. Hér er frétt Mogga af því þegar varaformaðurinn, Guðjón Bjarki Sverrisson, afhenti Guðbjarti undirskriftir 800 félagsmanna.
Niðurstaðan í stéttarfélagsaðildinni var sólarlagssákvæði, sambærilegt við þá félaga Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem unnu á Borgarspítalanum þegar hann rann inn í Landspítalann. Þeir sem voru í SFR fengu að vera þar áfram, aðrir fóru í bæjarstarfsmannafélögin. Vegna hárrar starfsmannaveltu er nú um það bil helmingurinn hættur og hinn helmingurinn af stuðningsfulltrúunum, einkum á sambýlunum, kominn í einhverja tugi bæjarstarfsmannafélaga.
Þar tvístraðist heil stétt og vandséð hvernig hún getur náð samtakamætti á nýjan leik.

Friday, February 6, 2015
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og ebóla
Ríkisútvarpið greinir frá því að AGS aðstoðar Ebóluríki. Það má kannski orða það þannig. Það kemur ekki fram í fréttinni að áður hefur AGS látið þessi sömu ríki skera niður hjá sér innviðina mjög harkalega, það er að segja heilbrigðiskerfið. Þær varnir sem þau þó höfðu gegn drepsóttum -- þær voru skornar niður að kröfu AGS.
Friday, January 23, 2015
Tipp-ex í Flateyjarbók: Þjóðminjasafn Egyptalands
Menn hafa lært mikið um forvarnir á fornminjum og öðrum hlutum undanfarna áratugi en ennþá sitja forverðir við heysáturnar af verkefnum sem forverar þeirra í starfi bjuggu til. Í Ísrael eru forverðir t.d. ennþá að pilla límband af Dauðahafshandritunum.
Menn hafa líka lært mikið í safnafræði og í að miðla því sem söfn geyma. Íslenska þjóðminjasafnið er gott dæmi um þá breytingu; þegar ég var lítill var hilla með miða, þar sem stóð "Prjónastokkar" og svo lágu þar 40 prjónastokkar í röð. Og önnur hilla með öskum, önnur með trafastokkum o.s.frv. -- ég veit að þetta er dálítil einföldun, en ég hygg að fólk viti hvað ég meina: "Gamla" safnið raðar upp rosalega mörgum munum. "Nýja" safnið reynir frekar að miðla þekkingu í gegn um fjölbreyttari og hugmyndaríkari upplifun. Það er alla vega hugmyndin.
Það er ennþá til fullt af gamaldags söfnum. Ég skoðaði Hofjagd- und Rüstmuseum í Vínarborg
(herklæða- og veiðisafn) fyrir nokkrum árum og það var nánast sjúklegt dæmi um "gamla" safnið. Salur eftir sal af gömlum brynjum. Og síðast þegar ég kom á British Museum voru þar ennþá tilgangslausir salir með mörghundruð grískum vösum.
Þjóðminjasafn Egyptalands er samt það versta sem ég hef skoðað. Ef Egyptalandi væri stjórnað af meira viti, meiri metnaði og meiri umhyggju, þá ætti þetta safn að vera eitt flottasta þjóðminjasafn í heimi. En það er það ekki. Það er rykfallið, illa upplýst, og minnir sumpart meira á geymslu heldur en sýningarsali. Þar eru salir þar sem standa 50 gamlar steinkistur. Í salnum við hliðina eru aðrar 50 steinkistur og í þarnæsta sal enn aðrar 50 steinkistur.
Ég skoðaði helgrímuna frægu af Tútankamon, gullgrímuna. Hún var flott, ótrúlega flott, en umgjörðin sem henni var búin var dapurleg. Ég verð að taka fram að hún var samt ekki eins dapurleg og restin af safninu -- en langt frá því að vera samboðin þessari gersemi.
Við stóðum þarna og skoðuðum eitthvert gamalt signet eða hring eða eitthvað. Aðrir gestir voru farnir úr úr herberginu. Þá kom vörðurinn og spurði hvort við vildum taka myndir með flassi. Við sögðum honum að það mætti ekki, það stóð skilti að það væri bannað. Iss, hann hélt nú að það skipti ekki máli. Við skyldum bara láta hann hafa seðla í lófann, þá væri það ekki lengur bannað!
Nú er í fréttum að einhver fábjáni, sem er kollegi þessa varðar, hafi verið að þrífa helgrímuna og rekið sig í hana þannig að skeggið brotnaði af! Það mætti kannski fyrirgefa klaufaskap sem kannski getur hent hvern sem er - en það sem gerir þennan fábjána að fábjána er að í staðinn fyrir að kalla til forverði og láta þá taka málið að sér, reddaði hann því bara sjálfur. Með epoxy-lími. Límdi skeggið skakkt á, svo það sést rifa á milli, og límið klíndist íka út fyrir límflötinn - en þessi hálfviti skrapaði það bara af með sköfu. Og rispaði gljáfægt gullið um leið. Og þetta gerði hann fyrir framan stóran hóp af túristum:
Þetta er um það bil eins heimskulegt og krota óvart í Flateyjarbók og leiðrétta það svo með tipp-exi.
Víða um heim liggja ómetanlegir egypskir fornleifafjársjóðir á söfnum. Egyptar krefjast þess oft að fá þá til baka. Það er réttmæt krafa í sjálfu sér - en það væri óábyrgt að senda ómetanlega muni á safn þar sem þeir eru ekki a.m.k. sæmilega öruggir. Egyptum er því miður greiði gerður með því að halda þessu frá þeim, á meðan þeir geta ekki komið sér upp þokkalegri aðstöðu fyrir þjóðminjasafnið sitt, og ráðið safnverði sem er klaufskt, heimskt og spillt.
Menn hafa líka lært mikið í safnafræði og í að miðla því sem söfn geyma. Íslenska þjóðminjasafnið er gott dæmi um þá breytingu; þegar ég var lítill var hilla með miða, þar sem stóð "Prjónastokkar" og svo lágu þar 40 prjónastokkar í röð. Og önnur hilla með öskum, önnur með trafastokkum o.s.frv. -- ég veit að þetta er dálítil einföldun, en ég hygg að fólk viti hvað ég meina: "Gamla" safnið raðar upp rosalega mörgum munum. "Nýja" safnið reynir frekar að miðla þekkingu í gegn um fjölbreyttari og hugmyndaríkari upplifun. Það er alla vega hugmyndin.
Það er ennþá til fullt af gamaldags söfnum. Ég skoðaði Hofjagd- und Rüstmuseum í Vínarborg
| Hjálmur Skanderbegs Epírótakappa er geymdur á Hofjagd- und Rüstmuseum í Vínarborg Mynd: Wikipedia |
Þjóðminjasafn Egyptalands er samt það versta sem ég hef skoðað. Ef Egyptalandi væri stjórnað af meira viti, meiri metnaði og meiri umhyggju, þá ætti þetta safn að vera eitt flottasta þjóðminjasafn í heimi. En það er það ekki. Það er rykfallið, illa upplýst, og minnir sumpart meira á geymslu heldur en sýningarsali. Þar eru salir þar sem standa 50 gamlar steinkistur. Í salnum við hliðina eru aðrar 50 steinkistur og í þarnæsta sal enn aðrar 50 steinkistur.
Ég skoðaði helgrímuna frægu af Tútankamon, gullgrímuna. Hún var flott, ótrúlega flott, en umgjörðin sem henni var búin var dapurleg. Ég verð að taka fram að hún var samt ekki eins dapurleg og restin af safninu -- en langt frá því að vera samboðin þessari gersemi.
Við stóðum þarna og skoðuðum eitthvert gamalt signet eða hring eða eitthvað. Aðrir gestir voru farnir úr úr herberginu. Þá kom vörðurinn og spurði hvort við vildum taka myndir með flassi. Við sögðum honum að það mætti ekki, það stóð skilti að það væri bannað. Iss, hann hélt nú að það skipti ekki máli. Við skyldum bara láta hann hafa seðla í lófann, þá væri það ekki lengur bannað!
Nú er í fréttum að einhver fábjáni, sem er kollegi þessa varðar, hafi verið að þrífa helgrímuna og rekið sig í hana þannig að skeggið brotnaði af! Það mætti kannski fyrirgefa klaufaskap sem kannski getur hent hvern sem er - en það sem gerir þennan fábjána að fábjána er að í staðinn fyrir að kalla til forverði og láta þá taka málið að sér, reddaði hann því bara sjálfur. Með epoxy-lími. Límdi skeggið skakkt á, svo það sést rifa á milli, og límið klíndist íka út fyrir límflötinn - en þessi hálfviti skrapaði það bara af með sköfu. Og rispaði gljáfægt gullið um leið. Og þetta gerði hann fyrir framan stóran hóp af túristum:
| Fábjáni að vinna spjöll á menningararfi mannkynsins Mynd: AP Photo/Jacqueline Rodriguez, hér fengin frá Yahoo News |
Víða um heim liggja ómetanlegir egypskir fornleifafjársjóðir á söfnum. Egyptar krefjast þess oft að fá þá til baka. Það er réttmæt krafa í sjálfu sér - en það væri óábyrgt að senda ómetanlega muni á safn þar sem þeir eru ekki a.m.k. sæmilega öruggir. Egyptum er því miður greiði gerður með því að halda þessu frá þeim, á meðan þeir geta ekki komið sér upp þokkalegri aðstöðu fyrir þjóðminjasafnið sitt, og ráðið safnverði sem er klaufskt, heimskt og spillt.
Thursday, January 22, 2015
Mannfýla af gamla skólanum
Ég ætla ekki að fullyrða að Gústaf Níelsson sé rasisti, í þeim þrönga skilningi þess orðs að hann aðhyllist kynþáttahyggju. En hann er alveg greinilega haldinn útlendingaandúð. Það er nákvæmara hugtak en rasismi, þótt "xenófób" sé óþjálla orð þegar verið er að munnhöggvast. Hræðslan við múslima, "Ísland er síðasta vígið, og það er að falla" og tillaga hans um að afnema trúfrelsi í landinu með því að banna íslam -- svona birtist hræðslan, sem reiði. Þegar maður er hræddur, þá upplifir maður sig veikan, en hatur og reiði eru valdeflandi fyrir fordómapoka eins og Gústaf. Þetta er í daglegu tali kallað rasismi, en það er auðvitað ónákvæmt hugtak. Útlendingaandúð er hins vegar nákvæmara hugtak.
Ég ætla ekki að halda því fram að Gústaf Níelsson sé hommahatari, í þeim þrönga skilningi að hann vilji hommum beinlínis illt. En hann fyrirlítur homma (og lessur) alveg greinilega og finnst allt í lagi að veitast að þeim með háði. Ég hef sjálfur heyrt hann tala þannig á Útvarpi Sögu, tala um "blómálfa" og "dillibossa" og fleira slíkt, sem maður hélt að heyrði sögunni til. Og maður heyrði á röddinni að hann setti stút á munninn til að herma eftir "krútt"-rödd, ef þið skiljið hvað ég á við. Svona fordómar eru orðnir svo sjaldgæfir á Íslandi að ég var eiginlega alveg gáttaður. Hvort sem hommahatur er nákvæmt eða ekki, eru hommaandúð, hommafælni og hommafóbía eru allt hugtök sem eiga vel og nákvæmlega við Gústaf.
Ég ætla heldur ekki að fullyrða að Gústaf sé kvenhatari. En hann hefur lýst sér sem "íhaldi af gamla skólanum", hefur tekið þátt í baráttunni gegn fóstureyðingum, og hefur unnið við að reka fatafellustað. Ég held að menn sem reka fatafellustaði, án þess að vera karlrembur, séu álíka sjaldgæfir og albínó-tapírar. Á Íslandi. En það er auðvitað strangt til tekið ekki hægt að útiloka að Gústaf sé mikill jafnréttissinni, og hafi bara verið að grínast með hinu öllu.
Það er orðin til sérstök grein fréttamennsku á Íslandi, sem gæti heitið "Hvað finnst Brynjari Níelssyni um [mál]?" Þessar einstaklega ómerkilegu fréttir eru svo algengar að þetta virðist vera hluti af stöðluðu verklagi íslenskra blaðamanna. Finna upp á frétt, finna heimildir fyrir henni, spyrja Brynjar Níelsson hvað honum finnist og láta svo prófarkarlesa. Botninum í þessari tegund frétta hlýtur samt að vera náð þegar það er orðið fréttnæmt að Brynjar Níelsson segi Gústaf bróður sinn ekki hata neinn. Og það í tveim fréttum, frekar en einni.
Ég hef heimildir fyrir því að Gústaf Níelsson hafi verið hrekkjusvín þegar hann var barn. Og hann er við sama heygarðshornið í dag. Hann ber ekki tilhlýðilega virðingu fyrir fólki sem slíku, og þess vegna finnst honum allt í lagi að drulla yfir þá sem eru ekki nákvæmlega eins og hann sjálfur. Fólk sem þolir öðrum að vera öðruvísi, fólk sem lætur ekki segja sér hverja það má elska, fólk sem trúir ekki á kirkjuna, fólk sem er ekki með litla skorpna sjálfsmynd og typpi.

Tuesday, January 20, 2015
IS í Danmörku: snúa baki við Enhedslisten
IS (Internationale socialister) ákváðu á landsfundi sínum að snúa baki við Enhedslisten, sem flokkur. Ástæðuna segja þeir vera að þeir eigi ekki lengur pólitíska samleið, en Enhedslisten hefur undanfarin ár verið á vegferð til hægri og til aukinnar tækifærisstefnu. IS, sem eru trotskíistar, munu nú snúa sér að uppbyggingu eigin flokks og friðarhreyfingarinnar. Frá þessu greinir Modkraft.dk.
Wednesday, January 14, 2015
Fáfróður karlsauður
Ég
er ekki vanur að hafa samúð með Sjálfstæðisflokknum, en mikið virðist það vera
pínlegt að vera með svona drumbi eins og Ásmundi Friðrikssyni í þingflokki. Meinleysisleg hugmynd hans um að taka múslima fyrir og mismuna þeim afhjúpar
tregan skilning á mannréttindum. Eins og oftast, þegar fáfrótt fólk tjáir
útlendingaandúð sína -- eða þegar lævísir stjórnmálamenn tjá hana við fólk sem
þeim finnst vera fáfrótt -- þá tekur Ásmundur það sérstaklega fram að hann sé
sko ekki rasisti og þetta sé sko enginn rasismi: „Ég er nú ekkert þannig“ segir
karlinn. Nei, þeir sjá það oftast ekki sjálfir, er það? Það er
eftirtektarvert, að þetta segja eiginlega aldrei neinir nema rasistar þegar
þeir eru að tala um rasisma. Já, meðan ég man, það er best að taka fram að ég
tel Ásmund ekki tilheyra lævísa hópnum.
Ef orðið „rasisti“ vekur hugrenningartengsl um hatursfulla fanta með kvalalosta, þá er það misskilningur. Flestir rasistar eru hvorki snoðaðir nasistar né fullir af hatri eða illmennsku. Þeir eru hins vegar oft fullir af ótta eða vanmáttarkennd -- og tómir af viti. Þeir óttast það sem þeir skilja ekki. Þeir eru oftast venjulegt, óupplýst fólk. Svolítið eins og Ásmundur Friðriksson.
Ásmundur gleymir ekki
möntrunni um að það þurfi að „taka þessa umræðu“ -- sem rasistar nota alltaf til að svara gagnrýni á tortryggnis- og óttaboðskap.
„Aðspurður um að gefa nánari skýringar á orðunum segist Ásmundur ... aðallega
vera að varpa fram spurningum til að vekja umræðu um þessi mál.“ Jæja, ef
spurningin er hvort eigi að mismuna fólki vegna trúarskoðana, þá er svarið
einfalt: Nei, Ásmundur, það á ekki að gera það.
Ég eltist ekki við
einhverjar sögur sem Ásmundur hefur heyrt með sínum trúgjörnu eyrum.
En hvað í andskotanum er „múslimisti“?
En hvað í andskotanum er „múslimisti“?
Ásmundur
spyr „hvort við þurfum ekki að hugsa málið og vanda okkur til framtíðar“ --
spurningin svarar sér sjálf, auðvitað á að gera það. Og hvað á þá að passa? Það
væri góð byrjun að mismuna ekki innflytjendum og ýtta þeim ekki út á jaðar samfélagsins. Og að sjálfsögðu þarf íslenskt samfélag að
breytast í takt við breytta samsetningu þess. Eins og það hefur alltaf gert. En ekki hvað?
En hvað er það sem hann
óttast um? „Það eru þessi algildu gildi um samfélag og að það sé byggt á
kristinni trú. Ég hef áhyggjur af því að mikill minnihluti þjóðarinnar vilji
úthýsa kristinni trú úr grunnskólum.“ -- Það var nefnilega það. Voru það ekki
skuggalegu útlendingarnir sem ógna siðnum í landinu! Á Þorláksmessu birtist grein eftir mig á Vísi, þar sem ég reyndi m.a. að þurrka aðeins upp eftir Ásmund. Þótt mér finnist leiðinlegt að þurfa að endurtaka sjálfan mig,
verður bara að hafa það:
Það má fyrirgefa karlinum fyrir að halda að hann sé í meirihluta, en það setur að manni stugg yfir hvernig honum finnst eðlilegt að fara með minnihlutahópa: þeir megi ... vera til, bara ef þeir ... sætta sig við að vera annars flokks. Þetta er trúfrelsi Ásmundar, að meirihlutinn kúgi minnihlutan.
Þar stóð reyndar líka:
Íslendingar ... sem standa utan kristinna trúfélaga eru miklu fleiri en innflytjendur sem standa utan kristinna trúfélaga. Það erum við, sem höfum flykkst út úr kirkjunni af sívaxandi þunga undanfarna áratugi. Það erum við, sem erum þyngsta lóðið í baráttunni fyrir trúfrelsi. Það erum við, þjóðin.
Ég leyfi þessu bara að standa og skýra sig sjálft.
Ásmundur segir að það eigi að gera eðlilegar kröfur til innflytjenda um þekkingu á sögu þjóðarinnar og viðurkenningu á þeim gildum sem íslenskt samfélag er reist á. Gott og vel -- það ætti þá líka að gera þær kröfur til Alþingismanna, að þeir hefðu grundvallarskilning á sögu og gildum þjóðarinnar, eins og sagan og gildin eru í alvörunni en ekki eins og þau eru kennd í sunnudagaskólanum þar sem nýjasta hetja kristilegu íslensku teboðshreyfingarinnar virðist hafa meðtekið mestalla sína visku.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
segist halda að karlsauðurinn hafi bara „komist óheppilega að orði“. Ég held að
hann hafi ekkert komist óheppilega að orði. Ég held að hann sé bara vitlaus.
Friday, January 9, 2015
Hörð átök framundan á vinnumarkaði?
Eftir að læknar semja um launahækkun -- og allir virðast vera sammála um að sú launahækkun sé veruleg, án þess að hafa séð samninginn -- þá tala sumir forkólfar í verkalýðshreyfingunni eins og samningar lækna gefi tóninn fyrir verkfallsátök þegar aðrar stéttir fara að semja, Ríkisútvarpið segir jafvel að „Gylfi spáir hörðum átökum framundan.“ Og ekki nóg með það: „Gylfi ... segir að sú sáttastefna sem markaði síðustu kjarasamninga aðildarfélaga ASÍ og BSRB sé brostin“. Rétt nú upp hend sem trúir því að Gylfi Arnbjörnsson eigi eftir að ganga í lið með verkalýðnum og fara að leiða einhverja alvöru baráttu! Rétt upp hend!
Kratísk/ökónómísk verkalýðshreyfing gengur út á að verkamenn og atvinnurekendur komist að einhverri niðurstöðu sem báðir aðilar eru sáttir við. Atvinnurekendur verða seint sáttir við að gefa eftir eitthvað að ráði af gróða sínum. Þess vegna er sáttastefnan, sem m.a. markaði síðustu kjarasamninga, ekki bara gagnslaus, heldur skaðleg fyrir vinnandi fólk. Sem betur fer kjósa félagar íslenskra verkalýðsfélaga um samninga, og ef nógu margir kjósa gegn ónýtum samningi, þá er hann felldur. Þessi réttur er ekki sjálfsagður, á dönskum vinnumarkaði þarf t.d. meirihluti allra félagsmanna að kjósa gegn samningi til að fella hann.
Það er út af fyrir sig kannski rétt hjá Gylfa að það verði átök um næstu samninga. Að stéttabaráttan hætti að vera bara að ofan á Íslandi, og íslenskt verkafólk fari aftur að berjast fyrir kaupi og kjörum sem sæma því. Eitt fyrsta vígið sem verkalýðurinn þarf að sækja að í þeirri baráttu verður sáttastefnan, þ.e.a.s. stéttasamvinnan -- að koma fulltrúum hennar út úr forystusveit sinni. Og hver ætli sé þar eftur á listanum?

Tuesday, December 30, 2014
Seth who?
Ekki veit ég hver eða hvað Seth Meyers er, né af hverju það er merkilegt að hann haldi upp á afmælið sitt á Íslandi. Ég hef oft haldið upp á afmælið mitt á Íslandi, án þess að Vísir hafi séð ástæðu til að slá því upp sem frétt.
Monday, December 29, 2014
Ráð við "hættulegu grjótkasti"
Ísraelskir hermenn munu hafa drepið ungan Palestínumann sem kastaði grjóti í brynvarinn bíl. Já, í brynvarinn bíl. Þetta heitir morð á íslensku. Ekki það, að ég skil vel að Ísraelarnir vilji ekki verða fyrir grjótkasti. Og það er líka einfalt að komast hjá því: drullið ykkur burt með hernámið og þann yfirgang, ofbeldi, morð, skemmdarverk og ótal aðra glæpi sem því fylgja.
Grjót er ekki máttugt vopn gegn skriðdrekum eða brynbílum. En það er yfirlýsing. Yfirlýsing um að maður sé ekki bugaður og neiti að gefast upp. Það er náttúrlega það sem zíonistarnir þola ekki. Þeim finnst eini eini góði indjáninn vera dauði indjáninn. Svo má kannski líka þola þá sem eru flúnir nógu langt í burtu. Út fyrir svæðið milli Efrat og Nílar, sem guð gaf þeim fyrir 3000 eða 4000 árum, samkvæmt bók sem þeir skrifuðu sjálfir.

Friday, December 26, 2014
"Vestræn gildi á borð við lýðræði og frjálshyggju"
Ríkisútvarpið greinir frá "hugmyndafræðilegri herferð" í einni af þessum skrítnu fréttum sínum um Kína. Ef einhver hefur lesið Edward Said, getur hann kannski kannast við einskonar óríentalisma í þessari frétt, hvað austurlandabúar séu framandi og furðulegir:
Vestræn gildi á borð við lýðræði og frjálshyggju? (A) Ég fylgdist bæði með þegar Xi Jinping var kosinn forseti og þegar Barack Obama var kosinn forseti. Ef þetta væri keppni í lýðræði, þá hefði Obama alla vega ekki unnið þá keppni. En það er skrítið að hafa það eftir ráðamönnum í Beijing að lýðræði sé framandi gildi fyrir Kínverjum. Síðast þegar ég vissi töldu þeir sig nefnilega stunda lýðræði, þótt það væri að vísu með öðru formi en á Vesturlöndum. (B) Er frjálshyggja "vestrænt gildi"? Loks hnaut ég um þetta:
Það er forseti Kína, Xi Jinping, sem á aðalheiðurinn af herferðinni, en hann hefur frá því hann tók við embætti í fyrra, haldið sósíalískum gildum á lofti og gert hvað hann getur til þess að efla stuðning almennings við Kommúnistaflokkinn.Það er náttúrlega besta máli í sjálfu sér, að halda sósíalískum gildum á lofti, en eitthvað er nú skrítinn þefur af þessari frétt, "auður og völd" eru þarna meðal gilda, a.m.k. eins og Ríkisútvarpið útleggur fréttina. Er þetta þýðingarvilla?
Ráðamenn halda því þó enn fram að vestræn gildi á borð við lýðræði og frjálshyggju séu ekki viðeigandi í Kína
Í dagblaðinu kemur fram að með herferðinni vilji borgaryfirvöld í Wuhan reyna að tryggja sér nafnbótina: Siðfáguð, þjóðleg borg. Hana fá þær borgir sem standast siðferðislegar kröfur yfirvalda.
Er þetta ekki svipað og þegar Garðabær, Seltjarnarnes og Reykjanesbær eru að keppast við að uppfylla amríska drauminn og fá verðlaun Heimdallar fyrir sveitarfélag ársins?
Wednesday, December 24, 2014
Frekjurnar sem vilja ræna jólunum
Ég skrifaði grein, hún heitir „Leyfum ekki frekjum að ræna jólunum“. Hún birtist á Vísi í gær: Leyfum ekki frekjum að ræna jólunum og á Vantrú í dag: Leyfum ekki frekjum að ræna jólunum. Njótið! Og gleðileg jól!
Monday, December 22, 2014
„Ég er ekki rasisti, en...”
Maður sem ég þekki lauslega sagði um daginn þessi fleygu orð í mín eyru: „Ég er ekki rasisti -- en hver andskotinn er að svertingjum!? Þeir eru svo klikkaðir! Og svo heimskir!“
Saturday, December 20, 2014
Óhefðbundin jól??
„Gott dæmi um óhefðbundin jól væri ... rjúpa á aðfangadag“Ríkisútvarpið greinir frá. Hvaða bull er þetta? Hvernig getur rjúpa talist óhefðbundin á aðfangadag? Hefur það farið framhjá fréttamanninum að rjúpnaveiði hefur verið takmörkuð til muna vegna þess hvað stofninn hefur minnkað? Það -- lítið framboð -- er væntanlega ástæðan fyrir því að það eta hana fáir á jólum, og þeir sem ekki skjóta sjálfir þurfa að punga út þúsundum fyrir hvern fugl ef þeir kaupa hann á svörtum markaði. Það má vel gera ráð fyrir að karlmaður eti tvo ef ekki þrjá fugla, þannig að augljóslega er hún ekki á borðum flestra ... en óhefðbundin?
Sunday, December 7, 2014
Gift kona kaþólskur prestur?
1) Kaþólska kirkjan bannar konum að vera prestar.
2) Kaþólska kirkjan bannar prestum að giftast.
Hvernig getur þá gift kona haldið kaþólska messu?
Thursday, November 27, 2014
Íslamska ríkið, hvað ber að gera?
Íslamska ríkið fer mikinn og gustar af því þannig að fýluna leggur a.m.k. hingað norður til Danmerkur þar sem ég sit og skrifa. Hér í Aarhus er m.a.s. moska þar sem froðufellandi íslamistar vinna unga menn á sitt band og senda þá á blóðvöllinn. Ég skal játa að ég skil ekki hvers vegna enginn hefur unnið alvarleg ofbeldisverk á þessari mosku og svínunum sem ráða í henni, en látum það liggja milli hluta.
Íslamska ríkið er skilgetið afkvæmi Vesturveldanna. Í aðra ættina er það beint afkvæmi þeirra, og í hina ættina óbeint. Beint, vegna þess að vestræn, einkum bandarísk, öfl hafa beinlínis hjálpað þeim að koma sér á laggirnar með m.a. vopnasendingum og þjálfun, hafa magnað þá upp til að ráða niðurlögum Assads og Baath-flokksins í Sýrlandi. Þeim virðist sem betur fer ekki verða kápan úr því klæðinu, þökk sé stuðningi Rússa og Kínverja og þökk sé tryggð og hreysti sýrlenska hersins og stykri forystu Assads. Og óbeint vegna þess að ólgan sem ÍS sprettur upp úr er meira og minna ruðningsáhrif af Íraksstríðinu, auk þess sem þorparaöfl við Persaflóa leika tveim skjöldum.
Það má heldur ekki gleyma gildi þess að eignast ógurlegan nýjan óvin á svæðinu, sem réttlætir frekari hernað og hermdarverk. Í löndum eins og Sýrlandi og Írak eiga aldrei eftir að ríkja öfl sem eru höll undir Vesturlönd, nema þá í krafti ofbeldis og kúgunar. Á meðan ekki er hægt að brjóta andstöðu fólksins niður með ofbeldi og "friða" löndin þannig, er það því hagur Vesturveldanna að stuðla frekar að upplausn, sundrungu og innbyrðis erjum, þannig að fólkið geti ekki sameinast og veitt heimsvaldastefnunni viðnám. Þá er auðveldara að ráðskast með það. Deila og drottna.
Loftárásir Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra eiga ekki eftir að brjóta ÍS á bak aftur. Þær eiga eftir að valda ómældum hörmungum fyrir óbreytta borgara og þær eiga líka sumpart eftir að styrkja ÍS með því að draga þarna víglínu milli vestrænnar heimsvaldastefnu annars vegar og ÍS hins vegar. Þá munu ungir, róttækir múslimar þyrpast í raðir ÍS og halda að þeir séu að berjast gegn heimsvaldastefnunni.
Ekki bætir það úr skák að réttlætingarnar byggjast á mörgum lögum af hræsni og skinhelgi. Dæmi: IS er stutt af Erdogan Tyrkjavaldi, en Tyrkland er í Nató og á að heita bandamaður Vesturlanda, til að berja á Kúrdum og veraldlega sinnuðum stjórnvöldum Sýrlands. IS er líka stutt af ýmsum, of ríkum, öflum bókstafstrúarmanna við Persaflóa þótt ruddaríkin þar eigi líka að heita bandamenn Vesturvelda. Og Saúdi-Arabar eiga að vera með Vesturveldunum í liði, þótt þeir séu kannski afturhaldssamasta aflið af öllum á svæðinu -- og er þá Íslamska ríkið sjálft kannski eina undantekningin. Eða lítur þannig út í fjölmiðlum; þar er mikið gert úr því þegar Íslamska ríkið í Írak og Sýrlandi hálsheggur gísl -- en þegar íslamska ríkið á Arabíuskaga, Saúdi-Arabía, hálsheggur tugi manns á ári, þá er lítið fjallað um það. Enda bandamenn Vesturvelda.
Það fór um mig hrollur nú síðsumars þegar Bandaríkjamenn kynntu fríðan flokk ríkja sem mundu taka þátt í loftárásum á Íslamska ríkið. Oft var tekið fram í fréttum að það "þætti sterkt" fyrir Obama að hafa Saúdi-Araba og fleiri arabalönd þar á meðal, það gæfi aðgerðinni betra yfirbragð. Ætli arabinn á götunni sé sama sinnis? Ætli þeir séu svo hrifnir af kúgunarvaldi Persaflóafursta?
Fólki getur fundist það sem því sýnist um Bashar al-Assad í Sýrlandi og stjórn hans. Ég fyrir mitt leyti trúi ekki öllu sem ég les í íhaldspressu Vesturlanda, þótt ég viti vel að margt sé að í landinu. Alla vega, það er aukaatriði. Assad og ríkisstjórn hans og her eru (a) tvímælalaust betri kostur en Íslamska ríkið og (b) einu öflin sem geta í alvörunni sigrað það. Skilyrðin fyrir því eru að utanaðkomandi öfl eins og Tyrkir og Flóafífl hætti að styðja Íslamska ríkið og að Sýrlendingar fái stuðning í staðinn. Menn þurfa ekki að elska Assad til að geta valið þann kost, það er einfaldlega skásti kosturinn. Það þýðir ekki að það verði fagurt á að líta; það verður það svo sannarlega ekki, en það eru engir aðrir kostir betri í stöðunni.

Monday, November 24, 2014
Palestína: friður verður aldrei byggður á yfirgangi
Mads Gilbert bannað að fara aftur til Gaza, um aldur og ævi, og öryggisástæðum borið við. Þegar ísraelsk yfirvöld segja "öryggisástæður", þá þýðir það yfirleitt annað hvort að það er geðþótti sem ræður, eða eitthvað annað sem hljómar of illa til að segja það. Ástæðan í tilfelli Gilberts er augljóslega að hann lætur ekki duga að hlynna að særðum, heldur ber líka vitni um það í vestrænum fjölmiðlum hvers vegna ástandið er svona, ber vitni um níðingshátt og grimmd Ísraela.
Um leið berast fréttir af því að ísraelsk yfirvöld ætli aftur að fara að rústa heimilum í hefndarskyni þótt einhverjir embættismenn hafi "dregið árangur þess í efa", eins og Vísir orðar það. Hefndaraðgerðir, með öðrum orðum. Áhrif þeirra er ekki að fæla herskáa Palestínumenn frá því að beita ofbeldi, heldur að reita aðra Palesínumenn enn meira til reiði og framkalla þannig ennþá meira ofbeldi af þeirra hálfu -- sem Ísraelar munu svo nota til að réttlæta fjöldamorð með stórvirkum vinnuvélum næst þegar hægriöfgamenn þurfa að píska upp stuðningsmóðursýki sjálfum sér til handa eða hafa meiri peninga af Bandaríkjunum.
Vandamálið í samskiptum Ísraela og Palestínumanna er í grunninn til ekki flókið. Vandamálið er að Ísraelar halda mestum hluta Palestínu hernumdum, en hafa herkví um afganginn. Fyrir utan þá hluta sem þeir hafa þjóðernishreinsað og innlimað. Skæruhernaður Palestínumanna verður ekki brotinn á bak aftur með hervaldi. Það verður því ekki friður á meðan harðlínuzíonistar (trúar- og þjóðernisöfgamenn) fá að halda ranglæti sínu áfram.

Thursday, November 20, 2014
Skuldaleiðrétting - eða félagsvæðing?
Skuldaleiðréttingin mikla, sem fer fram þessa dagana ef trúa má fréttum, er mjög umdeild. Ég er ósammála báðum meginpólunum. Ég tel ekki rétt að hið opinbera fjármagni þetta, en ég tel heldur ekki rétt að láta bara myllusteininn hanga um háls þjóðarinnar. (Ég sagði stundum á síðasta kjörtímabili, að ég væri mikið á móti ríkisstjórninni, en ég væri ennþá meira á móti stjórnarandstöðunni. Það hefur núna snúist við.)
Efnahagsmálahópur VG
Á misserunum eftir hrun tók ég töluverðan þátt í baráttu fyrir skuldaleiðréttingu. Aðallega innanflokks í VG, þar sem lítill hópur starfaði að því en var skjaldaður af flokkseigendafélaginu á svotil hverjum einasta fundi. Það má segja, með smá einföldunum, að barátta okkar hafi snúist um að leiðrétta forsendubrestinn sem varð í hruninu, t.d. með afnámi verðtryggingar, sem tæki gildi snemma árs 2008, þ.e. væri afturvirkt. Lógíkin var að bankar og lífeyrissjóðir ættu enga heimtingu á kröfum sem tilstofnuðust vegna forsendubrests og þar sem þeir hefðu hvort sem er aldrei reiknað með þeim peningum væri það í raun ekki missir fyrir þá að fá þá ekki. Þessar skuldir væru bara tilbúningur og hægt að fella þær niður með lögum. Það var stungið upp á ýmsum aðferðum sem ég ætla ekki að útlista nánar að sinni, en allar þessar tillögur mættu stífri andstöðu flokkseigendafélagsins.
Heyrði ég oft sagt að efnaðasta fólkið ætti ekki að fara að fá gefins peninga, hvers lags sósíalismi væri það? Svarið við því er auðvitað að það á að eiga við stéttaskiptingu með pólitík sem vinnur gegn arðráni, eða, ef maður er krati, með skattkerfi, en ekki nota hamfarir til að refsa öllum í hóp. Þvert á móti, það hefði átt að kasta bjarghring til allra, og ef einhverjir í hópnum hefðu helst átt skilið að drukkna hefði átt að taka þá umræðu í öðru samhengi.
Á landsfundinum 2009 var ég í efnahagsmálahópi, þar sem reyndist vera meirihluti reyndist vera fyrir leiðréttingartillögum. Hópurinn bar fram ályktunartillögu sína þegar fundurinn afgreiddi ályktanir, og reyndist það vera eina ályktunin sem Steingrímu J. Sigfússon tók til máls um í eigin persónu. Hún var var samþykkt með breytingartillögu Steingríms, m.ö.o. slógdregin og innihaldslaus.
Okkar hópi var mikil alvara, enda vægast sagt mikið í húfi. Japl-og-jaml-tillögur sem komu sem eins konar málamiðlun frá flokkseigendafélaginu -- málamiðlun milli hagsmuna heimilanda og hagsmuna fjármálaauðvaldsins -- fólust í einhverjum frystingum og frestunum og 110% leiðum sem fólk þekkir, og gengu allar út á að afskrifa sem minnst. Ástæðan, sem formælendurnir töluðu aldrei um, var auðvitað að afskriftir mundu rýra eignastöðu bankanna og ógna þannig rekstrargrundvelli þeirra. Þessar hálfkáks-hugmyndir fengu ekki stuðning okkar hóps, enda ber í fyrsta lagi ekki að greiða ranglátar skuldir og í öðru lagi er það bara blekking að halda formlega lifandi einhverjum kröfum sem allir vita að verða aldrei innheimtar.
Þessu þarf að halda til haga: Sá vinstriróttæki hópur sem ég starfaði í á fyrstu árum hinnar svokölluðu vinstristjórnar, barðist fyrir skuldaleiðréttingu, en þessi skuldaleiðrétting sem nú fer fram er ekki það sem við börðumst fyrir, og við eigum hvorki heiður né skömm af henni.
Alþýðufylkingin
Í þá daga var ennþá til vinstrivængur í VG. Hann yfirgaf flokkinn meira og minna fyrir síðustu Alþingiskosningar, og tvístraðist í mörg lítil framboð. Þorvaldur Þorvaldsson og ég reyndum allt sem við gátum til að halda þessu fólki saman, m.a. í gegn um félagið Rauðan vettvang, og þótt það hafi ekki (enn) borið tilætlaðan árangur, nýttist starf efnahagsmálahópsins í frekari úrvinnslu og stefnumótun um varanlegri lausnir, eftir því sem leið frá sjálfu hruninu og skuldaleiðréttingin færðist afturfyrir önnur meira "dagsaktúel" mál og varð um leið tæknilega flóknari og flóknari eftir því sem tíminn leið.
Í staðinn fyrir að láta umræðuna leiðast inn í myrkviði tækni- og lagarefja og blaðurs, vildum við marka skýra stefnu, boðskap sem stefndi í alvörunni annars vegar frá vandamálaunum og hins til varanlegra lausna. Félagsvæðing var svarið sem við fundum, (sjá nánar í stefnuskrá Alþýðufylkingarinnar): Í stuttu máli eigum við að koma á félagslegu fjármálakerfi, byggðu á samfélagslegu eigin fé, sem er ekki rekið í gróðaskyni heldur hjálpar fólki að eignast heimili á kostnaðarverði. Án vaxta. Vextirnir eru nefnilega miklu meira vandamál heldur en verðtryggingin; hún væri frekar lítið mál ef vextirnir væru ekki.
Félagsvætt fjármálakerfi væri ekki bara meiri búbót en skuldaleiðrétting, hún væri í raun á við margar skuldaleiðréttingar þar sem hún mundi að miklu leyti koma í veg fyrir nýjar fjármálabólur og -hrun. Félagsvæðing er ekki það sama og sósíalismi. Hún er skref í áttina. Hvorki meira né minna. Í áttina frá kapítalisma og áttina til sósíalisma. Stórt skref í rétta átt, með öðrum orðum.
Þið sem þetta lesið eruð líkleg til að hafa kosið aðra flokka, jafnvel starfa í þeim. Það hindrar ykkur ekki í að lesa stefnuskrá Alþýðufylkingarinnar og mynda ykkur skoðun á henni. Hún er stutt og skýr og hún á eftir að koma fram í umræðunni aftur -- og aftur og aftur.

Tuesday, November 18, 2014
Laun lækna: Hverju reiddust goðin þá?
Góð kona* sem ég þekki gerðist fráhverf sósíalismanum þegar hún frétti að læknar í Sovétríkjunum hefðu lækkað í launum eftir því sem hlutfall kvenna í stéttinni hækkaði. Voru hálaunastétt 1920 en ekki lengur 1950.
Íslenskir læknar hafa lækkað jafnt og þétt í launum á síðustu árum eða áratugum. Hlutfall kvenna hefur á sama tíma hækkað í stéttinni. Samkvæmt því ætti sá sem er óhrifinn af þróuninni að gerast fráhverfur kapítalismanum. Ekki satt?
* Nafngreini ekki fyrir siða sakir. Hún gefur sig fram ef hún vill.

Sessunautar í stafrófsröð
Ef svo ólíklega fer að Íslamska ríkið náið þeim ítökum að önnur lönd fari að viðurkenna það og það komist þá á lista yfir viðurkennd ríki, þá verður Ísland næst á eftir því í stafrófinu, og næst á undan Ísrael. Þá mun ég leggja til að skipt verði um nafn á Íslandi, við gætum kallað okkur Snæland. Yrðum þá mitt á milli Slóveníu og Salómonseyja, sem eru viðkunnalegri sessunautar.
Hrundar glansmyndir
Ég var tólf ára þegar Jón Páll Sigmarsson dó. Þegar ég var barn, var hann hetja mín og vina minna. Þegar hann dó frétti ég að hann hefði notað stera, og það var útskýrt fyrir mér hvað sterar væru og að hjartaáfalla væri algeng afleiðing af notkun þeirra. Þar hrundi glansmynd.
Næsta glansmynd hrundi nokkrum árum seinna. Ég var seytján og hékk gjarnan á kaffihúsi þar sem ég tefldi, spilaði og byrjaði að reykja og drekka kaffi. Eitt kvöld valt þar inn Hermann Gunnarsson, kófdrukkinn og spurði hvort þarna væru seldar sígarettur. "Nei", sagði vertinn, og Hemmi valt þá út aftur, með þessa þulu á vörunum: "andskotans djöfulsins helvítis andskotans djöfull". Eftir stóð ég, gapandi og með brostin augun, og aðra hrunda glansmynd frá bernskuárum.
Og núna fréttir maður af Bill Cosby. Ég hef, frá því ég var barn og fram á síðustu daga, haldið, og margsagt það fjölda fólks, að hann, sjálfur Fyrirmyndarfaðir, væri líklega besti maður í heimi. Alla vega síðan Freddie Mercury dó. Eðli málsins samkvæmt er svona yfirlýsing ekki bókstaflega meint, en núna eru komnir of miklir brestir í þá glansmynd til að ég muni endurtaka hana aftur.

Monday, November 17, 2014
Öfgahægriflokkur sem er á móti ESB
Í frétt Ríkisútvarpsins um heimkomu Vojislav Seselj til Belgrad segir að hann sé "leiðtogi öfgahægriflokks sem vill að Serbía hætti við aðildarumsókn sína að Evrópusambandinu." Flokkurinn hans, Radikali flokkurinn, er gott betur en það. Þetta er ekki einhver anti-ESB flokkur hægripopúlista, þetta er nánast ígildi nasistaflokks. Þetta er öfgafullur þjóðernisflokkur sem hatar múslima og Króata en þó alveg sér í lagi Albana.
Sumarið 2008, þegar Radovan Karadzic var tekinn fastur, var ég staddur í Mostar í Bosníu-Hercegóvínu, og ákvað að drífa mig til Belgrad til að verða vitni að mótmælunum sem vænta mátti þar. Þar voru haldnir miklir útifundir hægriöfgamanna, og greinilega að andstaða við Evrópusambandið var þeim ekki efst í huga. Gríðarstór fáni með andliti Seseljs blakti yfir fundinum, ásamt fleiri táknum þjóðernissinna, menn gengu í bolum með myndum af Radovan Karadzic og Ratko Mladic herforingja, og aðalslagoðr fundarins var "Kosovo je srtse Srbije" - Kosovo er hjarta Serbíu. Þá skörtuðu margir chetnika-höttum eða öðrum einkennisklæðum serbneskra þjóðernis- og konungssinna.
Þetta er ekki einhver borgaralegur fullveldisflokkur, heldur flokkur sem er nátengdur stríðsglæpamönnum úr Bosníustríðinu og snoðkollahreyfingunni. Það er rétt hjá Ríkisútvarpinu að titla hann öfgahægriflokk -- en það er villandi að láta hljóma eins og hann sé aðallega á móti Evrópusambandinu. Eiginlega hljómar það líkast því að andstaða við Evrópusambandið eigi að hljóma eins og öfgastefna. Varla er það undirliggjandi boðskapur frá Ríkisútvarpinu?

Enn logið upp á Alþýðufylkinguna
DV greinir frá því að Tolli Morthens hafi lært að búa til mólótofkokkteila í Alþýðufylkingunni.
Það er lygi, við höfum aldrei kennt Tolla Morthens að búa til mólótoffkokkteila!

Monday, November 10, 2014
Logið upp á Alþýðufylkinguna
Það skal að gefnu tilefni tekið fram, að sú Alþýðufylkingin sem ég er í hefur aldrei haldið um stjórnartaumana í Jemen!
Tuesday, September 23, 2014
Subscribe to:
Posts (Atom)