Friday, March 14, 2008

Condoleezza Rice er lygalaupur!

Bandaríkin fylgjast með Venezuela“ -- það er náttúrlega ekkert annað en hótun. Þetta tal um 300 milljónir dollara frá Chavez til FARC er lygi, eins og Greg Palast hefur þegar afhjúpað: $300 Million From Chavez to FARC a Fake. Ekki það, að það þurfti ekki Palast til þess að segja mér að það væri lygi. Kaupa úraníum í „skítuga sprengju“, -- það er hreint og beint ekki þannig sem FARC vinnur. Hér er ráð handa lygalaupunum í Bandaríkjastjórn: Ef þið ætlið að ljúga að okkur, sýnið okkur þá þá virðingu að láta lygina í það minnsta hljóma sennilega. Og hættið svo að myrða fólk. Fávitarnir ykkar.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Flýgur fiskisagan -- um daginn var frétt um að tveir Brasilíumenn hefðu verið handteknir, grunaðir um að byrla stelpum ólyfjan á Vegamótum. Eftir að bálreitt fólk hafði æpt í heilagri reiði, reyndust þeir saklausir. Reyndar heyrði ég að þetta hefði byrjað sem eitthvað flipp hjá tveim íslenskum manneskjum. Svei mér fyndið flipp það. Nú hefur lögreglan útilokað þrjá meinta kynferðisafbrotamenn, eftir að fólk hefur logað af heilagri reiði út í Pólverja í nokkra daga. Það safnast í sarpinn; það er svona sem útlendingahatur grefur um sig.

Thursday, March 13, 2008

Af suður-asískum maóistum og öðru

„Stærsta ógnin við öryggi á Indlandi“, Naxalbari-maóistar, eru með 15 milljón dollara sjóð til vopnakaupa, að sögn Manmohan Singh forseta landsins. Naxalítar eru félagar í RIM ásamt nepölsku maóistunum. Þeir neita því samt að vera í beinum tengslum. Annar aðildarflokkur í RIM, Kommúnistaflokkur Perú (betur þekktur sem „Skínandi stígur“) fordæmdi, sem kunnugt er, nepölsku maóistana hér í hittifyrra fyrir að víkja frá réttri stefnu og taka upp borgaraþjónkandi hentistefnu. Ég held ekki að naxalítar hafi tekið afstöðu í þessari innanbúðardeilu, en hins vegar hef ég fullan skilning á gagnrýni perúvíönsku maóistanna. Ekki að þeir hafi alltaf fylgt réttri stefnu heldur. En í öllu falli eru nepölsku maóistarnir komnir á furðulega borgaralega leið. Nú í apríl næstkomandi verður kosið til nýs stjórnlagaþings, og búist er við að það muni afnema konungdæmið og koma á fót borgaralegu lýðveldi í staðinn. Prachanda formaður er ekki fráhverfur því að verða framarlega í því. Hvaða maóisti sækist eftir metorðum innan borgaralegs lýðveldis, getið þið sagt mér það? Alla vega, hann sakar erlenda heimsvaldasinna og útþenslusinna (án efa með réttu) um að blanda sér í málin á bak við tjöldin, og segir Koirala forsætisráðherra vita vel hvað er á seyði. Á sama tíma skorar hann á aðra vinstrisinna að fylkja sér saman gegn afturhaldinu, um að sameinast um að afnema konungdæmið. Það er auðvitað hárrétt hjá honum, að það er í hæsta máta gott og rétt markmið. En hvergi nærri fullnægjandi; það er ekki nema hálfur sigur unninn með því, ef þá það. Ef markmiðið er borgaralegt lýðveldi, þá hafa þeir óneitanlega vikið af braut byltingarinnar. Og ef borgaralegt lýðveldi er bara áfangamarkmið, en sósíalískt lýðveldi er lengri tíma markmið, hvers vegna nota nepölsku maóistarnir þá ekki yfirburðastöðu sína til þess að mynda bandalag við verkafólk í Kathmandu og öðrum borgum, og koma sósíalíska lýðveldinu strax á?
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Ísraelskir þingmenn æfir vegna þess að Angela Merkel ætlar að ávarpa þá á þýsku. Jæjajá. Hún er fædd 1954. Hvernig er hægt að vera reiður út í hana út af helförinni? Af nógu er að tala til að hafa vanþóknun á henni út af, þótt helförin bætist ekki á sakaskrána líka. Ef þessir þingmenn eru svona mótfallnir fjöldamorðum, þá væri þeim nær að berjast gegn þeim í sínum eigin ranni, og vera ekki að siga ísraelskum hermönnum á palestínsk börn. Nema mannréttindin eigi bara við suma.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Annars er grein eftir mig á Egginni: Uppgangurinn í Kína er brothættur.

Monday, March 3, 2008

Ég er sammála Chavez. Hvernig væri að viðurkenna FARC sem skæruliðahreyfingu og reyna að ná samningum við þá í staðinn fyrir að hleypa öllu í kaldakol með ofbeldi? Ríkisstjórnin krímínalíserar lögmæta andspyrnu gegn harðstjórn. Meiri harðstjórn hlýtur að þýða bara meiri andspyrnu, er það ekki? Hér eru ábendingar á greinar í Arbejderen: Colombia har en illegal regering; FARC har aldrig brugt tvang og Livet i en FARC-lejr i Colombia.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Á Gaza-ströndinni eru Ísraelar búnir að drepa á annað hundrað mann á undanförnum dögum. Hvers vegna bregðast önnur ríki ekki við af hörku? Hvers vegna segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ekki neitt? Hvað ef þetta væri á annað hundrað flokksbundinna Samfylkingarmanna í kjördæminu hennar, Reykjavík?