Undanfarna mánuði hefur Alþýðufylkingin unnið að viðamikilli kosningastefnuskrá. Nú er hún komin á netið:
Wednesday, September 7, 2016
Friday, July 1, 2016
Thursday, June 16, 2016
Leggja mannanafnanefnd niður
Það er verið að undirbúa mikla losun á lögum um mannanöfn og hefði mátt gerast fyrr. Þessi lög og nefnd eru ekki bara óréttlát og kjánaleg, heldur ná þau ekki einu sinni yfirlýstum tilgangi sínum. Að nafnið megi t.d. ekki vera nafnbera til ama -- það er kannski göfugur tilgangur þegar börn eiga í hlut, en (a) fullorðið fólk á að geta borið sjálft ábyrgð á því hvað það vill heita og (b) fjöldinn allur af samþykktum nöfnum geta svo sannarlega verið til ama, bæði þau sem verða hlægileg þegar tvö standa saman og þau sem mörgum finnst bara asnaleg -- og vel að merkja, þá er mjög fjölbreytt hvað fólki finnst asnalegt.
En að krefjast þess að nafn sé nafnorð -- hvað er það? Bjartur, Svartur, Ljótur, Kristinn, Sighvatur, Vigfús, Ársæll -- eru þetta ekki allt lýsingarorð?

Monday, June 6, 2016
Samfylkingin ekki vinstriflokkur
„Jafnaðarmenn skilgreina sig ekki til hægri eða vinstri.“
Það var nefnilega það. Það er nú langt síðan ég áttaði mig á því að kratar hefðu fjarlægst upprunann svo mikið að þeir væru hættir að geta kallast vinstrimenn, en ágætt að fá þessa staðfestingu á því frá nýkjörnum formanninum.
Friday, June 3, 2016
Alþýðufylking á Akureyri á morgun
Alþýðufylkingin heldur opinn kynningarfun á Café Amour á Akureyri kl. 14 á morgun, laugardag.
Nánar hér: Alþýðufylkingin fundar á Akureyri á laugardag

Wednesday, June 1, 2016
Stríð um heimsyfirráð ... og mistök mín
Hér á þessu bloggi póstaði ég í fljótfærni grein á mánudaginn, þar sem nafn höfundar kom ekki fram. Ég var ekki höfundurinn (því miður, þetta er mjög góð grein), heldur var það Þórarinn Hjartarson. Greinin hefur nú birst þar sem henni var upphaflega ætlað að birtast, á heimasíðu Alþýðufylkingarinnar. Lesið hana, þið verðið betri manneskjur eftir það:
Stríð um heimsyfirráð: Hnattræn auðvaldselíta þolir ekki sjálfstæð ríki
Tuesday, May 24, 2016
Alþýðufylkingin annað kvöld: Opinn fundur um þingkosningarnar
Á morgun miðvikudag kl. 20 heldur Alþýðufylkingin opinn fund í Friðarhúsi um Alþingiskosningarnar framundan. Þorvaldur Þorvaldsson kynnir drög að kosningastefnuskrá. Umræður um kosningaundirbúning. Sjá hér.
Friday, May 20, 2016
Þorvaldur í sjónvarpsviðtali á Hringbraut
Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar, var í viðtali á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í fyrrakvöld og ræddi þar starf og stefnu flokksins.
>> Horfið á þáttinn hér <<
Tuesday, May 17, 2016
Endurnýjun Samfylkingarinnar?
Ég fullyrði að nafn eða merki Samfylkingarinnar er ekki ástæðan fyrir því að fólk nennir ekki að styðja hana. Það mundi hvorki duga Samfylkingunni að skipta á þeim, né að leggja sig niður og stofna sig upp á nýtt með sömu stefnuskrána. Krítískur massi í forystuliði Samfylkingarinnar er ótrúverðugur og nýtur ekki trausts. Fólk er dæmt af verkum sínum á síðasta kjörtímabili. Því kann sjálfu að þykja það ósanngjarnt, en það er staðreynd að síðasta ríkisstjórn brást vonum mikils fjölda fólks sem trúði á hana. Hún þjónaði auðvaldinu af trúmennsku, undir nafninu "vinstristjórn". Með því ruddi hún brautina fyrir hægristjórnina sem nú ríkir. Þetta geta allir séð sem kæra sig um það.
Árni Páll var reyndar merkilega glöggskyggn í gagnrýnis-og-sjálfgagnrýnis-bréfi sínu til flokksmanna sinna fyrir nokkrum mánuðum. Sumpart glámskyggn að vísu, en það er efni í aðra grein.
Ég held satt að segja að sameining Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar og VG væri lífvænleg leið og gæti skilað þeim sameinaða flokki dálaglegum þingflokki. Ekki ætti málefnaágreiningurinn að þvælast fyrir núna, eftir að vinstriarmurinn í VG hraktist meira og minna burt í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Reyndar er hjákátlegt að sjá þetta fólk í þremur flokkum, sem gæti vel rúmast í einum.
(Það er fyndið að sjá menn fabúlera um að Píratar gætu verið með í þessari sameiningu. Hvers vegna ættu þeir að vilja það?)
Óttarr Proppé reifaði það í viðtali fyrir nokkrum vikum, að einhverjir væru spenntir fyrir R-listaævintýri. Framboð í anda Reykjavíkurlistans væri kannski ekki galið, en listabókstafurinn R er reyndar frátekinn fyrir Alþýðufylkinguna. Það hefur enginn haft samband við okkur enn um að sameinast krötum, og ég sýti það svosem ekki.
Sameinið ykkur, kratar, það skýrir línurnar.

Friday, May 13, 2016
ESB-aðild: Kjarni málsins
"Að sjálfsögðu á að skoða aðild" segja menn stundum.
Það er að sjálfsögðu rétt.
Að sjálfsögðu á að skoða ESB-aðild, vel og vandlega, og síðan á að hafna henni.
- - - -
Menn segja stundum 'skoða aðild' þegar þeir meina að sækja um aðild, semja um aðild og ganga svo frá aðild. Það er röng meðferð á orðinu "skoða". Það orð þýðir að kynna sér eitthvað. Jæja, ég skal að vísu játa að það væri alveg hægt að ganga í ESB og skoða hvernig aðildin hefur áhrif á landið okkar og hvað gerist og þannig ... næstu áratugina ... ef það er það sem einhver meinar.
En svo er líka hægt að skoða aðild 28 ríkja sem þegar eru með samning -- og þá sér í lagi samning þeirra sem nýjust eru í sambandinu. Þar fær maður meira en nægar upplýsingar til að mynda sér skoðun.

Monday, May 9, 2016
Fyrsta maí-ávarp
Fyrsta maí-ávarp Alþýðufylkingarinnar er komið á heimasíðu flokksins. Lesið það:
1. maí ávarp Alþýðufylkingarinnar 2016
Wednesday, May 4, 2016
1. maí-ræða Björgvins
Björgvin R. Leifsson flutti ræðu á baráttufundi Stefnu á Akureyri á fyrsta maí. Alveg hreint helvíti fína ræðu. Lesið hana hér:
Tuesday, May 3, 2016
Rótgrónu sérverslanirnar og minjagripabúðirnar
Sú var tíðin að maður heyrði oft áhyggjur af framtíð verslunar í miðbænum. Það tal hef ég ekki heyrt nú um nokkurra ára skeið -- a.m.k. ekki af framtíð verslunar almennt -- en áhyggjurnar af gömlu verslununum hafa skotið upp kollinum í staðinn. Þið þekki þetta: Gamalgrónar búðir, sem Reykvíkingar hafa verið vanir í áratugi, týna tölunni. Búðir sem okkur þykir/þótti vænt um. Einsleitar minjagripabúðir spretta í staðinn upp eins og gorkúlur. Vísir er hættur, Litur og föndur er farin, ýmsar fleiri sem ég ætla ekki að telja upp. Verslanir með hönnunarvarning sem túristum finnst kúl en velta samt kannski ekki miklu. Aðrar hafa túristabóluna hangandi yfir sér eins og sverð.
Í pistlinum "Rótgrónar sérverslanir kveðja miðborgina" (RÚV 29. apríl) er fjallað um þetta. Ég ætla ekki að endurtaka þann pistil. En ég hnaut um orð Hjálmars Sveinssonar. Hann „segir það sorglegt að rótgrónar sérverslanir hverfi úr miðbænum. En hann telur ekki rétt að setja kvóta á minjagripabúðir almennt.“ -- Ef rétt er eftir haft, takið þá eftir orðalaginu: hann telur.
Þá kemur rökstuðningur Hjálmars:
„Borgin er þegar búin að vera með mjög mikil inngrip, inn á þetta svæði og inn í ráðstöfunarrétt þeirra sem eiga fasteign við Laugaveginn með því að banna fólki að opna veitingastað ef það uppfyllir ekki kvóta, þú ert að grípa inn í þennan ráðstöfunarrétt og eignaréttinn en það hefur gefist vel svo ég segi það enn og aftur. Svarið hefur verið að það sé ekki hlutverk borgarinnar að stjórna því hverju kaupmenn raða í hillurnar. Kaupmenn verða sjálfir að finna út hvað selst best og það er eðli verslunar. Keðjutakmarkanir eru hins vegar til umræðu, að setja takmörk á hversu margar verslanir eitt fyrirtæki má eiga.“
Aftur, takið eftir orðalaginu þarna í miðjum textanum: „Svarið hefur verið að það sé ekki hlutverk borgarinnar...“ -- svar hvers er það? Ég man eftir svipuðu orðalagi, þegar var verið að reyna að fá borgina til að stofna borgarbanka. Tilgangur hans hefði í stuttu máli verið að veita borginni sjálfri fjármálaþjónustu, og spara henni þannig fjármagnskostnað. Svar Dags Eggertssonar var að það væri „ekki hlutverk borgarinnar að reka banka“. Engin frekari rök þar. En er það „hlutverk borgarinnar“ að borga vexti?
Þetta er auðvitað bara bull. Hlutverk borgarinnar er, þegar öllu er á botninn hvolft, það sem við viljum að það sé. Við, sem búum í borginni. Eins og Hjálmar segir sjálfur, þá gerir borgin nú þegar mikil inngrip. Það er kvóti á því hve víða má selja tilbúinn mat eða drykki í glösum. Og hann talar líka um takmarkanir á verslunarkeðjur. Gott og vel. En hvers vegna þá ekki minjagripabúðir?
Sko: Laugavegurinn er ekki eign þeirra sem eiga fasteign við hann. Hann er sameign okkar allra. Ef þar er ekki hægt að kaupa annað en lunda og flíspeysur, þá er búið að eyðileggja hann. Ekki bara fyrir heimamönnum, -- meira að segja líka fyrir túristum. Hver nennir að koma og skoða eintómar minjagripabúðir?
Það er hlutverk borgarinnar að hlú að menningu og mannlífi í borginni. Því hlutverki bregst hún ef ferðamennskufarsóttin fær að þurrka út miðbæinn.
Þess vegna á borgin að setja skorður við því hvað má hafa minjagripabúðir í mörgum húsum við Laugaveg eða í miðbænum. Og hún á líka að stöðva þetta vitskerta hótelæði, sem tröllríður miðbænum.
Við verðum að hafa stefnu til þess að ferðamannastraumurinn drekki okkur ekki. Við þurfum að geta tekið á móti fólki á okkar forsendum, án þess að það skaði okkur sjálf.
Svo þurfum við auðvitað líka að muna að þetta gullæði mun taka enda þegar næsta kreppa kemur í löndunum sem túristarnir koma frá. Bólan mun svo sannarlega springa. Hver á þá að sofa á öllum þessum hótelum, og kaupa alla þessa lunda?

Friday, April 29, 2016
Rauður fyrsti maí
Rauður
fyrsti maí 2016 verður haldinn í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, sunnudaginn 1. maí
kl. 20:00. Gleði og glaumur í anda stéttabaráttunnar!
Fjölbreytt
menningardagskrá. Fram koma m.a.: G. Rósa Eyvindardóttir, Ísak Harðarson,
Kristian Guttesen, Sigvarður Ari Huldarsson, Sólveig Anna Jóndóttir, Vésteinn
Valgarðsson, Þorvaldur Þorvaldsson o.fl.
Allir
velkomnir, nema þá helst auðvaldið!
Fyrir
kvöldinu standa Alþýðufylkingin og Menningar- og friðarsamtökin MFÍK.
Sunday, April 24, 2016
Málþing um marxisma á miðvikudag 27/4
Ég vek athygli á þessu málþingi Rauðs vettvangs nk. miðvikudag (27/4):
Kienthal 1916 - Reykjavík 2016
Framsögumenn:
Árni Daníel Júlíusson: „Útsýnið til kommúnismans. Er þokunni að létta?“
Sólveig Anna Jónsdóttir: „Hvað þýðir hægri og vinstri í dag?“
Þorvaldur Þorvaldsson: „Lærdómar frá Kienthal“
Heitt á könnunni -- allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Staður: Friðarhús, Njálsgötu 87.
Stund: Miðvikukvöldið 27. apríl kl. 20:00.
Kienthal 1916 - Reykjavík 2016
-- Verkefni marxista á vorum dögum
Málþing Rauðs vettvangs, haldið í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá Kienthal-ráðstefnunni, þar sem kommúnistar gerðu upp við meðvirkni sósíaldemókratahreyfingarinnar.Framsögumenn:
Árni Daníel Júlíusson: „Útsýnið til kommúnismans. Er þokunni að létta?“
Sólveig Anna Jónsdóttir: „Hvað þýðir hægri og vinstri í dag?“
Þorvaldur Þorvaldsson: „Lærdómar frá Kienthal“
Heitt á könnunni -- allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Staður: Friðarhús, Njálsgötu 87.
Stund: Miðvikukvöldið 27. apríl kl. 20:00.
Tuesday, April 19, 2016
Árni Páll: Vafningar eða verðmætasköpun?
Árni Páll Árnason skrifar á Kjarnann: Vafningar eða verðmætasköpun?
Það er margt gott í þessari grein. Um hana vil ég þó segja:
Að því sögðu er ánægjulegt að dropinn sé farinn að hola steininn. Að formaður Samfylkingarinnar sé farinn að taka undir málflutning Alþýðufylkingarinnar veit vonandi á gott. Ætli félagar hans í flokknum séu samt ekki ennþá of „frjálslyndir“ og „nútímalegir“ til að veita félagsvæðingu fjármálakerfisins brautargengi?

- Það er til þýðing á hugtakinu „financialisation“: fjármálavæðing.
- Þórarinn Hjartarson hefur skrifað betur um fjármálavæðingu og ókosti hennar en flestir.
- Lausnin liggur líka fyrir, sjá t.d. framsögu Þorvalds Þorvaldssonar: Félagsvæðing fjármálastarfseminnar (svo ég nú ekki tali um stefnuskrá Alþýðufyllingarinnar).
Að því sögðu er ánægjulegt að dropinn sé farinn að hola steininn. Að formaður Samfylkingarinnar sé farinn að taka undir málflutning Alþýðufylkingarinnar veit vonandi á gott. Ætli félagar hans í flokknum séu samt ekki ennþá of „frjálslyndir“ og „nútímalegir“ til að veita félagsvæðingu fjármálakerfisins brautargengi?
Monday, April 11, 2016
Samsæri og Panamaskjölin
Egill Helgason bloggaði í gær um samsæriskenningar um Panamaskjölin. Hann tekur ekki beint afstöðu til þeirra sjálfur, en sumir sem skrifa athugasemdir tala um þær eins og þær séu hreinræktað kjaftæði. Bara eins og bandaríska leyniþjónustan eða öfl henni tengd mundu aldrei taka þátt í einhverju svona endemi. Og ef Rússar andmæla og koma með aðrar skýringar en vestræn hagsmunaöfl -- þá er það áróður Rússa -- en eins og samsæri, þá mundu hetjur frelsisins aldrei nota áróður. Áróður og samsæri -- það er eitthvað sem hinir nota bara. Ekki við. Ekki fólk eins og við.
Þórarinn Hjartarson skrifar athyglisverða grein um Panamaskjölin á vefsíðu Alþýðufylkingarinnar. Kíkið á hana:

Panamasprengjan. Til hvers?
Sunday, April 10, 2016
Fleiri ráð fyrir friðsama mótmælendur
* Takið strætó á mótmælin ef þið búið ekki í göngufæri. Stór mótmæli = erfitt að finna bílastæði!
* Rúlla af einangrunarlímbandi tekur lítið pláss en getur gbjargað miklu ef skiltið eða fánastöngin laskast.
* Vertu edrú. Það er ekki kúl að vera kenndur eða drukkinn að mótmæla!

Saturday, April 9, 2016
Mótmæli og krúttlegt augnablik
Það þarf eindreginn brotavilja til að skilja ekki hvers vegna ætti að boða til kosninga. Úr því Alþingi felldi vantraustið í gær, þá kæmi ekki á óvart að mótmælin færðust í aukana. Ef ríkisstjórnin velur það sjálf, að láta bola sér frá völdum með illu, frekar en að verða við kröfunni um kosningar strax, -- þá er það bæði óábyrgt val og getur orðið dýrkeypt. Að ríkisstjórnin óttist kosningar -- það er í sjálfu sér næg ástæða til að halda kosningar, er það ekki?
Skoðanakannanirnar eru líka athyglisverðar. Bæði að Píratar sýnast dala smá og að Samfylkingin virðist ekki njóta óánægjunnar með stjórnina. En fylgisskot VG er þó skrítnara.
Ráð fyrir fólk sem ætlar á friðsöm mótmæli: * Klæðið ykkur eftir veðri; * ef þið eruð með skilti, verið þá viss um að spjaldið sé vel fest á stöngina svo það fjúki ekki af; * bylgjupappi virkar illa í mótmælaspjald nema í blíðasta veðri; * hafið með ykkur nesti og vatnsbrúsa; * farið á klóið áður en þið farið af stað; * ef þið viljið berja í járn til að gera hávaða, verið þá með vinnuvettlinga svo þið fáið ekki blöðrur í lófana; * dómaraflauta tekur lítið pláss en gerir mikið gagn; * hafið með ykkur eyrnatappa, að minnsta kosti fyrir börnin ykkar.
Vísir greinir frá krútt-mómenti þegar vingjarnlegur lögreglumaður gaf barni órigamí-fugl. Eldey dóttir mín var einmitt svo heppin að fá líka svona fugl frá þessum sama manni, þegar hún kom með mér á miðvikudaginn var. Sú var ánægð.

Thursday, April 7, 2016
Þorvaldur svarar Ögmundi
Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar, skrifaði grein sem birtist í Fréttablaðinu í fyrradag. Þar svaraði hann grein Ögmundar Jónassonar, frá síðasta föstudegi. Lesið greinina á heimasíðu Alþýðufylkingarinnar:
Hvað þykistu vera að reyna að segja, Ögmundur?
Subscribe to:
Posts (Atom)