Ingen klassekamp uden kvindekamp!
Ingen kvindekamp uden klassekamp!
Ingen kvindekamp uden klassekamp!
dico et salvo animam meam
![]() |
| Þúsund CFA-frankar. Mynd: Wikipedia |
Auk þess höfðu [Frakkar] miklar áhyggjur af því að Gaddafi ætlaði að minnka áhrif Frakka með því að koma á fót eigin gjaldmiðli, sem yrði notaður víðar í álfunni, til þess að koma í stað franska frankans sem er útbreiddur í Afríku. Gaddafi lá á gríðarlegum gull- og silfurforða sem hann ætlaði að nota til þess að styðja við gjaldmiðilinn.Frakkar tóku þátt í Líbýustríði til að standa vörð um franska frankann. Þetta hefur RÚv eftir Simon Blumenthal, ráðgjafa Hillary Clinton. Franska frankann? Hafa Afríkumenn ekki frétt af evrunni?
Stríðið gegn fíkniefnum drepur milljónir sjúklinga á hverju ári, stimplar neytendur sem glæpamenn og leyfir glæpaklíkum að einoka markaðinn, oft með skelfilegum afleiðingum fyrir saklausa borgara. Það er í nafni þessa stríðs sem íslensk ungmenni eru gerð ærulaus, finnist þau með korn af kannabis í fórum sínum.
Stríðið gegn hryðjuverkum drepur hundruð þúsunda saklausra borgara árlega, heldur þjóðum í herkví og takmarkar gróflega frelsi flugfarþega, sem eru meðhöndlaðir sem glæpamenn við vopnaleit. Það var í nafni þessa stríðs sem ráðamenn Íslands gerðust stríðsglæpamenn í Írak.
Stríðið gegn internetinu veldur því að fólk eins og Chelsea Manning situr í fangelsi, Edward Snowden er landflótta og Julian Assange má sig hvergi hræra af ótta við að verða framseldur til Bandaríkjanna - fyrir það eitt að leka upplýsingum. Í nafni öryggis, bannhyggju og forvarna er aðgangi almennings að upplýsingum eða að koma frá sér upplýsingum lokað eða reynt að loka víðsvegar í heiminum. Það er í nafni þessa stríðs þegar íslenskir ráðamenn ætla að loka fyrir aðgang almennings að hluta internetsins.
Hið þríeina stríð gegn borgaralegum mannréttindum og frelsiechelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon echelon
Stefna íslensku auðstéttarinnar er að nota húsnæðisþörf fólksins sem féþúfu sem gefur af sér hámarksgróða. Í meira en 30 ár hefur almenningur borgað margfalt fyrir íbúðir sínar með okurvöxtum.Ríkisstjórnin sem sat kjörtímabilið 2009-2013 sá þá lausn helsta á skuldavanda almennings að reka þá fátækustu út á götuna og neyða þá til að borga himinháa húsaleigu m.a. með því að hindra aðgang að lánsfé nema til braskara.
Eina leiðin út úr húsnæðiskreppunni er sú sem Alþýðufylkingin hefur boðað, með félagsvæðingu fjármálakerfisins. Skref í þá átt gæti verið að allir geti fengið vaxtalaust lán að vissri upphæð af samfélagslegu eigin fé til húsnæðiskaupa.Að sama skapi þarf að vera nægt framboð á félagslegu húsnæði án fjármagnskostnaðar til að uppfylla þörf fyrir leiguhúsnæði.