Thursday, July 16, 2009
Tönn
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Úff -- það hrannast upp verkefnin þegar maður bregður sér af bæ. Það er ekki lítið illgresi í garðinum hjá mér í augnablikinu...
Tuesday, June 23, 2009
Bylting eða landflótti
Já, ríkisstjórnin hefur sannarlega stuðning minn -- og hann bæði gagnrýninn og skilyrtan. Ég gagnrýni það sem mér þykir gagnrýni vert, en styð hana þó -- með því skilyrði að hún hætti við ESB-umsókn, gangi úr EES og NATÓ, sýni IMF fingurinn, þjóðnýti grunnstoðir samfélagsins, leiðrétti húsnæðisskuldirnar, boði til stjórnlagaþings, lækki stýrivextina og afskrifi IceSave-skuldirnar. Að lokum legg ég til að ríki og kirkja verði aðskilin.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Þessa dagana sér maður ýmsar hugleiðingar um það í umræðunni, hvernig sé hægt að rétta efnahag landsins við. Ýmsar hugmyndir, misjafnlega frumlegar en margar góðar, allt frá innspýtingu í markaðssetningu á landinu til þjóðnýtingar á jöklabréfunum og að þau yrðu látin standa undir atvinnusköpun. Ágætar hugmyndir, ef þær kæmu fram í venjulegu árferði. En ástæðan fyrir hremmingunum núna er ekki skortur á frumkvæði eða mistök við markaðssetningu. Hvernig væri að byrja á að leiðrétta höfuðstól húsnæðislána, og segja nei við IceSave-skuldbindingunum?
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Ríkisstjórnin endurómar til okkar hræðsluáróðri um að við verðum skóggangsmenn í samfélagi þjóðanna ef við borgum ekki IceSave og hér fari fyrst allt til andskotans ef við dirfumst að snerta á vísitölunni til að lækka höfuðstól húsnæðisskulda. Svo ég noti orð Steingríms J. sjálfs, þá er þetta óábyrgt rugl. Hótanir Breta og Hollendinga eru hugsaðar til þess að hræða okkur og eru að miklu leyti blöff. Ég skil að þeir hóti okkur, en að Steingrímur og Jóhanna hóti okkur? Hvað er málið? Og með húsnæðisskuldirnar: Ef þær væru leiðréttar, þá mundi eigið fé bankanna væntanlega lækka. Þar liggur náttúrlega hundurinn grafinn. Það eru hagsmunir fjármálaauðvaldsins sem eru í húfi, er það ekki?
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Það eru ákveðin atriði sem verða að komast í framkvæmd. Mér liggur við að kalla það sögulega nauðsyn. Annað hvort gerir ríkisstjórnin það sem þarf að gera, eða þá að það gerist einhvern veginn öðru vísi. Annað hvort leiðréttir hún húsnæðisskuldirnar eða það verður greiðsluverkfall. IceSave verður ekki borgað: Annað hvort neitar ríkisstjórnin eða ríkið verður ófært um að borga. Annað hvort göngum við ekki í ESB vegna þess að ríkisstjórnin hættir að berjast fyrir því, eða vegna þess að ríkisstjórnin mun bíða ósigur í þjóðaratkvæði.
Ef þessi ríkisstjórn gerir þetta ekki, þá neyðumst við til að taka til eigin ráða. Ef ríkisstjórnin ætlar að reyna að synda á móti straumi sögulegrar nauðsynjar, þá verði henni að góðu. Þá er það bylting eða landauðn.
Sunday, June 14, 2009
IceSave
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Ef það verður bylting hérna á næstu mánuðum, þá fer nú að koma tími til að stofna byltingarlfokk, er það ekki?
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Jón Karl skrifar hugleiðingu á Eggina: Virkar kommúnismi?
Thursday, June 4, 2009
Af fundi hjá SFR
Fyrir lífi ríkið rær,
rekkum mjög til ama.
Árni Stefán áheyrn fær
en ekki Dalai Lama.
Friday, May 29, 2009
Af okkur
~~~ ~~~ ~~~
Ég hef ekki farið mikinn á netinu undanfarið, hvorki á bloggi né annars staðar. Barnastúss tekur náttúrlega tíma, en frítími hefur aðallega farið í garðvinnu. Ég er búinn að sá og planta mjög miklu af matjurtum, búa til matjurtagarða þar sem áður voru grasblettir í garðinum, og næst á dagskrá er að hlaða grjóti. Hef gripið stein og stein á ferðum mínum um bæinn, en fór áðan við þriðja mann og við sóttum á að giska eitt og hálft tonn af grjóti kerru. Það er samt bara brot af því sem þarf áður en yfir lýkur. Ég hlakka vægast sagt mikið til að fara að hlaða af alvöru.
~~~ ~~~ ~~~
Eftir púl í garðinum er fátt betra en að fá sér einn ískaldan. Ég hef undanfarið lagt mig eftir því að smakka nýjar og nýlegar íslenskar bjórtegundir. Brugghúsið í Ölvisholti kemur sterkt inn; Mungát er hreint sælgæti, Móri hinn ljúffengasti líka og Skjálfti sömuleiðis. Lava er ekki eins fyrir minn smekk; imperial stout höfðar ekki svo til mín. Meðal annarra sem verðskulda meðmæli eru Jökull og Skriðjökull frá Stykkishólmi, og svo sá sem trónir á toppi íslenskra lagera: El Grillo. Öll þessi nýju brugghús eru þörf og tímabær viðbót við ölmenningu Íslands.
Vonbrigði eða...
~~~ ~~~ ~~~
Hér eru svo þrjár greinar sem ég skora á fólk að lesa
Þórarinn Hjartarson skrifar um Michael Hardt og Antonio Negri: „Kommúnistar“ gefa hnattvæðingunni heilbrigðisvottorð
Óli Gneisti Sóleyjarson skrifar um Dalai Lama: Hans heilagleiki herra Lama
Svanur Sigurbjörnsson læknir skrifar um Detox: ... og afeitrun Jónínu Ben flytur heim
~~~ ~~~ ~~~
Það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr viðræðum aðila markaðarins um "stöðugleika". Ætli sá "stöðugleiki" verði á kostnað vinnandi fólks, eins og alltaf? Skyldi það nokkuð vera?
Tuesday, May 5, 2009
Hetja?
Hvers vegna er honum valin einkunnin stríðshetja? Lítur Vísir á það sem hetjuskap að þjóna hernámsöflum í Írak? Eða drýgði hann hetjudáðir meðan hann var þar? Særðist hann kannski þegar hann steig á jarðsprengju þegar hann var að bjarga börnum út úr brennandi húsi? Ég er forvitinn, hvort er hann hetja eða ekki?
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Jón Karl skrifar á Eggina: Anarkistar vs. kommúnistar?
Friday, May 1, 2009
3 mánuðir
Eldey dafnar vel. Þegar hún fór í þriggja mánaða skoðun sýndi mæling að frá níu vikna skoðun hafði hún þyngst um 600 grömm og lengst um 3 sentimetra. Með sama áframhaldi verður hún, þegar hún kemst á minn aldur, um 280 kíló að þyngd og um 14 metrar á hæð.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Ég hef ekki mikið getað unnið í garðinum undanfarið, en það kemur að því að ég geti farið að gera það. Ég er meðal annars ekki viss um að matjurtagarðurinn verði neitt sérstaklega merkilegur í ár. Eða réttara sagt, þá verður hann það varla úr þessu.
Verkalýðshreyfing í kreppu?
Verkalýðshreyfingin hefur tekið ýmsum breytingum í tímans rás, eftir því hvernig þjóðfélagsaðstæður hafa breyst. Þessa dagana breytast þær hratt, og því er rétt að ræða hlutverk og eðli stéttarfélaganna nú, hvaða verkefni þjóðfélagið setur þeim fyrir og hvernig hagsmunum vinnandi fólks er best borgið. Hreyfingin má ekki vera feimin við að endurskoða sjálfa sig í takt við kröfur samtímans.Það er auðvitað kreppan sem breytir öllu. Þótt hún sé skilgetið afkvæmi fjármálaauðvaldsins, þarf að hafa hraðar hendur til þess að hún dragi ekki allt þjóðfélagið niður. Verkalýðshreyfingin þarf að standa sameinuð og föst fyrir ef hún ætlar að rækja hlutverk sitt í þessari baráttu.
Lesa rest á Egginni: Verkalýðshreyfing í kreppu?
Friday, April 24, 2009
Hvað á að kjósa?
Í kosningum má gróflega skipta byltingarsinnum í tvo hópa, þá sem vilja frekar styðja skásta kost heldur en ekkert, og þá sem neita að styðja borgaraleg framboð. Nú eru sjö framboð sem munu keppa um hylli kjósenda á laugardaginn kemur, öll borgaraleg. Ég ætla hvorki að eyða orðum í hægriflokkana fjóra né Ástþór Magnússon að sinni. Þá eru eftir Vinstrihreyfingin-grænt framboð og Borgarahreyfingin, framboðin tvö sem vekja mesta athygli fólks sem vill alvöru breytingar.
Thursday, April 9, 2009
Að vera kommi en kjósa krata
Ég vil byrja á að taka það fram að ég reikna með að kjósa VG í komandi kosningum.
Steingrímur segir tillögur VG vera "hófstilltar" og "ábyrgar" -- ég skal ekki dæma um það, en er núna tíminn fyrir "hófstilltar" tillögur? Ég meina, ástandið sem íhaldið skildi eftir sig er ekki beint hófstillt, er það? Ef þið spyrjið mig væri nær að setja fram róttækar tillögur. Og ábyrgar? Ábyrgar gagnvart hverjum?
Ég mun kjósa VG nema eitthvað makalaust komi upp á, og ég hvet aðra til hins sama. Hinir flokkarnir eru meira og minna handónýtir. Að því sögðu, þá er rétt að fram komi að þótt VG séu besti kostur í stöðunni, þá má samt finna ýmislegt að þeim. Tékkið á þessu:
Af efnahagsmálum á landsfundi Vinstri-grænna og:
VG og sósíalisminn eftir sjálfan mig, og:
Nokkur orð um VG eftir Þórarinn Hjartarson.
Monday, April 6, 2009
Köllum það sínu rétta nafni
Hugmyndafræði [Alþjóðagjaldeyris]sjóðsins er gömul og úrelt, af sumum fræðimönnum beinlínis talin vera glæpsamleg.Þetta er út af fyrir sig rétt hjá honum. En til að kalla hlutina sínum réttu nöfnum, þá kallast þessi stefna heimsvaldastefna á mannamáli: Alþjóðavæðing fjármálaauðvaldsins og hæsta stig auðvaldsskipulagsins. Það verður ekki bakkað frá henni, aftur á bak í hagþróun. Eina leiðin út úr þessari bóndabeygju er áfram -- kollvarpa auðvaldsskipulaginu, og taka í staðinn upp nýtt þjóðskipulag á öðrum og manneskjulegri forsendum: Lýðræði, mannréttindi, réttlæti og skynsemi eiga að vera útgangspunktarnir. Með öðrum orðum, sósíalismi.
Thursday, April 2, 2009
A-manneskja
Það er allavega greinilegt að hún hefur ekki morgungeðvonskuna úr föðurættinni.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Afhendingar tvær:
Litlu vil ég lofa um hvað leysa kratar,
formenn þeirra og flokkasnatar.
En bráðum kemur byltingin með blóm í haga,
og sósíalíska sumardaga.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Réttindi kvenna hafa oft verið notuð sem átylla fyrir árásarstríðinu og hernáminu á Afganistan. Talibanar voru svo vondir en Ameríkanar eru svo góðir, nefnilega. Þess vegna er það víst kvenfjandsamlegt að vilja að Afganistan verði sjálfstætt ríki. Eða, það mætti halda það ef maður tryði áróðrinum. Stjórnarskrá landsins ku taka það fram að engin lög megi brjóta í bága við íslam. Þessi frétt segir líka sitt. Mér þykir lítið standa eftir af meintum ávinningi afganskra kvenna af hernáminu.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Hvers vegna á Omar al-Bashir að sætta sig við að vera tekinn fastur vegna ódæða í Darfur, ef George Bush fær að leika lausum hala þrátt fyrir ódæði í Írak, Afganistan, Sómalíu, Kúbu, Bandaríkjunum og víðar?
Á ráðstefnunni sem við Rósa fórum á í Cairo í fyrra, talaði Rósa við konu frá Súdan. Sú hélt nú ekki að það væri neitt þjóðarmorð í gangi í Darfur. Seisei nei. Tryðum við öllu sem við læsum í fjölmiðlum? Við skyldum bara skella okkur þangað sjálf og sjá með eigin augum. Ættum við á hættu að verða myrt eða nauðgað eða eitthvað slíkt? Við ættum það líka á hættu ef við værum stödd í, segjum, New York, er það ekki?
Þetta dugði nú ekki alveg til að sannfæra okkur um að allt væri með felldu í Darfur, og við höfðum ekki tíma til að þekkjast heimboð konunnar góðu.
Wednesday, April 1, 2009
VG og sósíalisminn
Á landsfundi Vinstri-grænna var lögð fram ályktunartillaga, sem ég var meðflutningsmaður að, þess efnis að Vinstrihreyfingin-grænt framboð væri sósíalískur flokkur og skyldi kalla sig það. Flokkurinn væri nú þegar yfirlýstur feminískur og umhverfisverndarsinnaður, en verkalýðsmálin hefðu orðið útundan og því skyldi kippa í liðinn með þessari yfirlýsingu. Samþykkt var að vísa tillögunni, lítið breyttri, til flokksráðs til afgreiðslu. Þetta segir sitt.
Thursday, March 26, 2009
Óánægja með landsfund VG
Monday, March 23, 2009
Af landsfundi VG
Ég er hins vegar mjög vonsvikinn vegna meðferðar Steingríms J. á ályktun um bráðaaðgerðir vegna húsnæðisskulda. Svo óánægður að það skyggir á allt annað. Mér finnst ábyrgðarhlutur að þegja þegar manni er misboðið í svona málum, og mun ég því skrifa nánar um það í grein á morgun eða hinn. Ég ætla að spara yfirlýsingar þangað til. Fyrir utan smá kveðskap:
Lofa vil ég litlu um hvað leysa kratar,
formenn þeirra og flokkasnatar.
En bráðum kemur byltingin með blóm í haga:
og sósíalíska sumardaga.
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Bretar læra viðbrögð við hryðjuverkum. Þvílík djöfulsins della. Þetta er hræðsluáróður og ekkert annað. "Hryðjuverk" eru einhver uppblásnasta ógn okkar tíma. Hræðsla fólks er notuð til að skerða persónufrelsi, kortleggja manneskjur, gera jaðarhópa tortryggilega og hækka valdbeitingarstig ríkisvaldsins. Já, og líka til að kyrkja Landsbankann í Englandi og bregða fæti fyrir flugfarþega. Djöfulsins della!
Saturday, March 21, 2009
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
Ég gekk í VG fyrir fjórum vikum, og í dag (s.s. föstudag) var á á landsfundi flokksins. Þessi fæddist þar:
Verður þess minnst, er hægri her
hrundi, með kynstrum sleginn.
Gæfan finnst þó: Grasið er
grænna vinstra megin.
Friday, March 20, 2009
"einfaldur kapítalismi"
~~~ ~~~ ~~~ ~~~
"Ísraelar unnu voðaverk" -- svei mér fréttir það.